Stjórnarandstaða vill nýja nefnd um stöðu landsbyggðarfjölmiðla

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Auglýsing

Þrettán þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar vilja að Krist­ján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, skipi starfs­hóp til að gera úttekt á starf­semi fjöl­miðla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og leiðir til að tryggja stöðu þeirra. Þing­menn­irn­ir, sem koma úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­un­um, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis á Alþing­i. 

Sam­kvæmt til­lög­unni á starf­hóp­ur­inn að leggja fram til­lögur sem fela í sér aðferðir og leiðir til að efla og tryggja stöðu lands­byggð­ar­fjöl­miðla „þannig að þeir fái gegnt lýð­ræð­is-, menn­ing­ar-, upp­lýs­inga- og fræðslu­hlut­verki sín­u.“ Hóp­ur­inn eigi að skila skýrslu og til­lögum eigi síðar en 1. nóv­em­ber næst­kom­and­i. 

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að það sé margra álit að fjöl­miðlar sem starf­ræktir eru utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins búi við erfið starfs­skil­yrði sem hamli því á ýmsan hátt að þeir geti rækt hlut­verk sitt eins og æski­legt væri. Því sé áríð­andi að afla hald­bærra upp­lýs­inga um stöðu lands­byggð­ar­fjöl­miðla og styrkja rekstr­ar­grund­völl þeirra þar sem þess sé þörf og for­sendur séu fyrir slíkum stuðn­ing­i. 

Auglýsing

Þá er í grein­ar­gerð­inni fjallað um aðrar til­lögur sem komið hafi fram um stöðu fjöl­miðla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, og um leiðir til þess að styrkja fjöl­miðla, meðal ann­ars opin­berar styrk­veit­ing­ar. 

Nefnd þegar að störfum um stöðu fjöl­miðla

Nú þegar er nefnd að störfum um svipuð mál, þótt sú nefnd fjalli ekki sér­stak­lega um stöðu lands­byggð­ar­fjöl­miðla. Ill­ugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, skip­aði nefnd til að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla í byrjun þessa árs. Nefndin á að gera athugun á stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi og er nú að störf­um. Hún er að skoða ýmsar leiðir til þess að bæta stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla, meðal ann­ars styrkja­fyr­ir­komu­lag. 

Nefndin byggir á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Ill­ugi lagði fram í októ­ber síð­ast­liðn­um, sem ekki náð­ist að klára fyrir kosn­ing­ar. Í þeirri til­lögu kom fram að full­trúar einka­rek­inna fjöl­miðla hefðu vakið athygli stjórn­valda á erf­ið­leikum sem blasa við í rekstri þeirra og megi rekja til ýmissa utan­að­kom­andi aðstæðna. Meðal ann­ars megi telja til það að aug­lýs­inga­­mark­að­­ur­inn hér­­­lendis hafi ekki vaxið sem skyldi þrátt fyrir batn­andi efna­hag þjóð­­ar­innar og auk þess fari ætið stærri hluti aug­lýs­inga­fjár til erlendra stór­­fyr­ir­tækja á borð við Google og Face­­book. Þá hafi staða Rík­­is­út­­varps­ins á aug­lýs­inga­­mark­aði einnig tak­­­mark­andi áhrif á mög­u­­leika ann­­arra fjöl­miðla til að afla aug­lýs­inga­­tekna. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None