Hlutabréf í Icelandair Group hafa hríðfallið í verði í morgun í kjölfar þess að félagið birti afkomuviðvörun í morgun. Þegar þetta er skrifað hafa bréf í Icelandair lækkað um rúmlega 20 prósent það sem af er degi. Hlutabréfaverð í félaginu hefur lækkað um rúmlega helming frá því í apríl 2016, eða 54,4 prósent.
Icelandair Group birti í morgun tilkynningu um að félagið muni birta afkomu fjórða ársfjórðungs 2016 eftir lokum markaða þann 7. febrúar næstkomandi. Í tilkynningunni segir að að undanförnu hafi orðið breyting á bókunarflæði Icelandair til hins verra. „Bókanir eru hægari en gert var ráð fyrir og meðalfargjöld á mörkuðum hafa lækkað umfram spár. Þessa þróun má einkum rekja til aukinnar samkeppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breytinga í alþjóðastjórnmálum hafi áhrif á eftirspurn. Að auki hafa gjaldmiðlar þróast á óhagstæðan máta miðað við fyrra ár, olíuverð hefur hækkað og verkfall í sjávarútvegi hefur neikvæð áhrif á fraktstarfsemi félagsins. Á móti kemur að horfur í hótelstarfsemi Icelandair Group eru góðar.
Miðað við núverandi forsendur gerir félagið ráð fyrir að EBITDA ársins 2017 verði 140-150 milljónir Bandaríkjadala. Gert er ráð fyrir að verð á þotueldsneyti (án tillits til varna) verði 540 USD/tonn að meðaltali, gengi EUR gagnvart USD verði að meðaltali 1,07 og gengisvísitala íslensku krónunnar verði 164 að meðaltali á árinu 2017.
Þegar hefur verið gripið til ýmissa aðgerða í rekstri samstæðunnar sem gert er ráð fyrir að skili hagræðingu og auknum tekjum. Áfram er gert ráð fyrir hóflegum innri vexti á árinu, og að mati stjórnenda félagsins eru langtímahorfur þess góðar.
Í takt við stefnu félagsins var efnahagsreikningur félagsins sterkur í árslok 2016. Samkvæmt drögum að ársreikningi var eiginfjárhlutfall ríflega 40% og handbært fé og markaðsverðbréf um 250 milljónir Bandaríkjadala. Félagið er því vel í stakk búið til að takast á við þær sveiflur sem eiga sér stað í rekstrarumhverfi þess.“
Gengi allra hlutabréfa sem búið er að eiga viðskipti með í dag hafa lækkað, utan bréfa í Nýherja sem birti sterkt ársuppgjör í gær.