Umhverfisstofnun hefur gefið úr starfsleyfi fyrir Thorsil ehf. til að reka kísilverksmiðju í Helguvik. Í leyfinu eru viðameiri kröfur gegn mengun lagðar á herðar fyrirtækisins en áður. Fjöldi íbúa í Reykjanesbæ sendi inn athugasemdir í umsagnaferli. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Umhverfisstofnun. Starfsleyfið gildir til 11. september 2031.
Þann 27. október 2016 kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð að fella úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunar frá 11. september 2015 um að veita Thorsil ehf. starfsleyfi fyrir rekstri kísilverksmiðju á iðnaðarsvæðinu í Helguvík. Í kjölfarið tók Umhverfisstofnun afgreiðslu málsins fyrir á ný.
Í fréttatilkynningunni segir að þegar umsagnarfrestur var útrunninn höfðu borist athugasemdir frá 30 einstaklingum, tvö minnisblöð frá rekstraraðila og eitt áframsent erindi frá Samgöngustofu. „Nokkrir umsagnaraðilar vöktu í athugasemdum sínum athygli á undirskriftarlista þar sem farið var fram á að Umhverfisstofnun gefi ekki út starfsleyfi fyrir „kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík að svo komnu máli“ eins og það er orðað í texta þeirra sem óskuðu þess að undirskriftalistinn yrði hafður til hliðsjónar við ákvörðun. Tæplega 3500 einstaklingar skrifuðu nöfn sín á undirskriftalistann. Umhverfisstofnun fór yfir allar athugasemdir sem bárust og breytti eins og áður segir nokkrum ákvæðum fyrra starfsleyfis til að koma á móts við ábendingar almennings. Helst ber að nefna ný ákvæði um lykt í greinum 3.19 og 3.20 vegna reynslu sem skapast hefur af hinni verksmiðjunni. Ákvæði um lykt voru ekki í starfsleyfinu sem fellt var úr gildi, enda var engin umræða um lykt frá starfseminni í mati á umhverfisáhrifum eða í umsóknargögnum. Var fyrirfram ekki talin hætta á slíkum vandamálum. Nokkrum öðrum atriðum í starfsleyfinu var breytt lítillega og vísast þar til greinargerðar og starfsleyfisins.“
Áætlanir gera ráð fyrir að framleiðsla í kísilverið Thorsil hefjist í lok árs 2018 en Thorsil hefur tryggt sér orku frá Landsvirkjun og HS Orku. Kísilverið á að framleiða 54 þúsund tonn af málmi í fyrsta áfanga en síðar ná ársframleiðslu upp á 110 þúsund tonn.