Thorsil fær starfsleyfi frá Umhverfisstofnun

Thorsil hefur fengið leyfi til að reka kísilverksmiðju í Helguvik. Í leyfinu eru viðameiri kröfur gegn mengun lagðar á herðar fyrirtækisins en áður.

Frá undirritun um orkukaup 10. maí 2016. Fyrir miðju sitja Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Hákon Björnsson, forstjóri Thorsil. Á myndinni eru líka Jón Sveinsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Thorsil.
Frá undirritun um orkukaup 10. maí 2016. Fyrir miðju sitja Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Hákon Björnsson, forstjóri Thorsil. Á myndinni eru líka Jón Sveinsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Thorsil.
Auglýsing

Umhverf­is­stofnun hefur gefið úr starfs­leyfi fyrir Thorsil ehf. til að reka kís­il­verk­smiðju í Helgu­vik. Í leyf­inu eru viða­meiri kröfur gegn mengun lagðar á herðar fyr­ir­tæk­is­ins en áður. Fjöldi íbúa í Reykja­nesbæ sendi inn athuga­semdir í umsagna­ferli. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Umhverf­is­stofn­un. Starfs­leyfið gildir til 11. sept­em­ber 2031.

Þann 27. októ­ber 2016 kvað úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála upp úrskurð að fella úr gildi ákvörðun Umhverf­is­stofn­unar frá 11. sept­em­ber 2015 um að veita Thorsil ehf. starfs­leyfi fyrir rekstri kís­il­verk­smiðju á iðn­að­ar­svæð­inu í Helgu­vík. Í kjöl­farið tók Umhverf­is­stofnun afgreiðslu máls­ins fyrir á ný. 

Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að þegar umsagn­ar­frestur var útrunn­inn höfðu borist athuga­semdir frá 30 ein­stak­ling­um, tvö minn­is­blöð frá rekstr­ar­að­ila og eitt áfram­sent erindi frá Sam­göngu­stofu. „Nokkrir umsagn­ar­að­ilar vöktu í athuga­semdum sínum athygli á und­ir­skrift­ar­lista þar sem farið var fram á að Umhverf­is­stofnun gefi ekki út starfs­leyfi fyrir „kís­il­málm­verk­smiðju Thorsil í Helgu­vík að svo komnu máli“ eins og það er orðað í texta þeirra sem ósk­uðu þess að und­ir­skrifta­list­inn yrði hafður til hlið­sjónar við ákvörð­un. Tæp­lega 3500 ein­stak­lingar skrif­uðu nöfn sín á und­ir­skrifta­list­ann. Umhverf­is­stofnun fór yfir allar athuga­semdir sem bár­ust og breytti eins og áður segir nokkrum ákvæðum fyrra starfs­leyfis til að koma á móts við ábend­ingar almenn­ings. Helst ber að nefna ný ákvæði um lykt í greinum 3.19 og 3.20 vegna reynslu sem skap­ast hefur af hinni verk­smiðj­unni. Ákvæði um lykt voru ekki í starfs­leyf­inu sem fellt var úr gildi, enda var engin umræða um lykt frá starf­sem­inni í mati á umhverf­is­á­hrifum eða í umsókn­ar­gögn­um. Var fyr­ir­fram ekki talin hætta á slíkum vanda­mál­um.  Nokkrum öðrum atriðum í starfs­leyf­inu var breytt lít­il­lega og vís­ast þar til grein­ar­gerðar og starfs­leyf­is­ins.“

Auglýsing

Áætl­anir gera ráð fyrir að fram­leiðsla í kís­il­verið Thorsil hefj­ist í lok árs 2018 en Thorsil hefur tryggt sér orku frá Lands­virkjun og HS Orku. Kís­il­verið á að fram­leiða 54 þús­und tonn af málmi í fyrsta áfanga en síðar ná árs­fram­leiðslu upp á 110 þús­und tonn.

p.p1 {marg­in: 0.0px 0.0px 6.0px 0.0px; text-align: justi­fy; font: 12.0px 'Times New Rom­an'; -webkit-text-­stroke: #000000} ­span.s1 {font-kern­ing: none}

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None