Tvö framboð bárust til formanns VR og ellefu til stjórnar fyrir kjörtímabilið 2017 – 2019 en framboðsfrestur rann út á hádegi í dag, fimmtudaginn 9. febrúar.
Frambjóðendur til formanns eru Ólafía B. Rafnsdóttir, núverandi formaður, og Ragnar Þór Ingólfsson, að því er fram kemur á vef VR. Ekkert mótframboð barst gegn lista trúnaðarráðs VR í trúnaðarráð félagsins og telst hann því löglega kjörinn.
Alls bárust ellefu framboð til stjórnar.
Annmarkar voru á nokkrum framboða og var frambjóðendum gefinn frestur til að laga þá, að því er segir á vef VR. Listi yfir frambjóðendur til stjórnar verður birtur þegar þeir annmarkar hafa verið lagaðir, segir enn fremur.
Fyrirhugað er að kosningar hefjist þann 7. mars næstkomandi en kjörstjórn mun auglýsa tilhögun þeirra nánar þegar nær dregur.