Stjórnendur Arion banka ræddu við lífeyrissjóði

Undirbúningur söluferils á Arion banka miðast við að sala fara fram í apríl.

arion-banki-4_9954305546_o.jpg
Auglýsing

Funda­höld áttu sér stað í síð­ustu viku með full­­trú­um inn­­­lendra líf­eyr­is­­sjóða þar sem Hösk­uldur Ólafs­son banka­­stjóri og Stefán Pét­urs­son fjár­­­mála­­stjóri Ari­on banka kynntu starf­­semi hans með aðkomu sjóð­anna fyr­ir aug­um, við sölu bank­ans. 



Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Ríkið á 13 pró­sent í Arion banka og Kaup­þing 87 pró­sent. Horft er til tvö­faldrar skrán­ingar á bank­an­um, í Sví­þjóð og á Íslandi, eins og greint var frá á vef Reuters 18. jan­úar sl. 

Und­ir­­bún­­ing­ur söl­unn­ar hef­ur staðið um langa hríð. Þau tölu­­legu gögn sem lágu fyr­ir fund­in­um byggð­ust á síð­asta 9 mán­aða upp­­­gjöri bank­ans, sem til­­kynnt var til Kaup­hall­ar um miðjan nóv­­em­ber síð­ast­lið­inn, að því er segir í Morg­un­blað­inu.

Auglýsing

Í um­­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­­blað­inu í dag seg­ir, að ljóst þyki, að til­­­gang­ur funda­hald­anna sé að búa líf­eyr­is­­sjóði und­ir að til þeirra verði leitað og þeim boð­inn hlut­ur í bank­an­um þegar kem­ur að sölu hans, sem sam­­kvæmt því sem fram kom gæti orðið í apr­íl.

Hagn­aður Arion banka á árinu 2016 nam 21,7 millj­­örðum króna sam­an­­borið við 49,7 millj­­arða króna árið 2015. Þetta kemur fram í til­­kynn­ingu frá bank­an­um sem send var út í gær.

Hösk­­uldur Ólafs­­son, banka­­stjóri, segir upp­­­gjörið við­un­and­i. Hann gagn­rýnir stjórn­­völd í land­inu fyrir að fram­­lengja banka­skatt­inn svo­­nefnda og segir hann fyrst og fremst stuðla að hærra vaxta­­stigi í land­inu. Sér­­stak­­lega víkur hann að íbúða­lána­­mark­aði þar sem hann segir sam­keppn­is­­stöðu ekki vera jafna. „Bankar keppa á inn­­­lendum mark­aði við líf­eyr­is­­sjóði þegar kemur að veit­ingu íbúða­lána en líf­eyr­is­­sjóðir greiða hvorki tekju­skatt né fjár­­­sýslu- eða banka­skatt. Ljóst er að sam­keppn­is­­staðan á þessum mark­aði er ekki jöfn og aðgerðir stjórn­­­valda fela í sér ein­­kenn­i­­lega íhlutun á sam­keppn­is­­mark­aði. Alls greiðir Arion banki um fimm millj­­arða í skatta á árinu sem fyr­ir­tæki í öðrum atvinn­u­­greinum greiða ekki. Banka­skatt­­ur­inn hefur haft tak­­mörkuð áhrif á verð­lagn­ingu bank­anna hingað til enda átti hann að vera tíma­bund­inn. Þar sem skatt­­ur­inn leggst á fjár­­­mögnun banka þá leiðir hann til kostn­að­­ar­auka hjá við­­skipta­vinum bank­anna og stuðlar þegar allt kemur til alls að hærra vaxta­­stigi í land­inu. Mik­il­vægt er að þessi skatt­lagn­ing verði end­­ur­­skoð­uð,“ segir Hösk­­uld­­ur.

Arð­­semi eigin fjár bank­ans var 10,5 pró­­sent á árinu sam­an­­borið við 28,1 pró­­sent árið 2015. Reikn­aður hagn­aður af reglu­­legri starf­­semi nam 9,7 millj­­örðum króna sam­an­­borið við 14,1 millj­­arð á árinu 2015. 

Arð­­semi eigin fjár af reglu­­legri starf­­semi  nam 4,7% sam­an­­borið við 8.7% á árinu 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None