EVEREST VR, sýndarveruleikaupplifun af því að klífa Everest-fjall, verður varanlegur hluti af Everest-safni konunglegu landfræðistofnunar Bretlands (the Royal Geographical Society with IBG, RGS-IBG). Þetta varð ljóst eftir að stofnunin þáði EVEREST VR að gjöf frá Sólfar Studios, íslensku sýndarveruleikafyrirtæki sem framleiddi upplifunina.
Samkvæmt upplýsingum frá Sólfari var EVEREST VR gjöfin hugsuð til að styðja við góðgerða- og fræðsluhlutverk stofnunarinnar í að auka sýnileika og þekkingu á hinu sögulega Everest safni. Upplifunin verður notuð í kynningum og sýningum fyrir almenning, skóla og fræðimenn í Bretlandi í tengslum við Everest safn stofnunarinnar. Jafnframt verður hún einnig notuð við þjálfun og undirbúning ferða.
EVEREST VR sýndarveruleikaupplifunin var upphaflega gefið út í fyrra. Um er að ræða upplifun á því að klífa hæsta fjall í heimi ásamt víðfemi þess. Hægt er að fara 18 sögulegar leiðir upp fjallið sem hægt er að upplifa frá mismunandi stærðargráðum. Ein þeirra leiða sem er í boði er leiðin sem Sir Edmund Hillary og Tenzing Norgay fóru er þeim tókst fyrstum manna að ná alla leið upp á tind fjallsins.
Kjartan Pierre Emilsson, einn stofnenda Sólfars og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, er ánægður með að EVEREST VR sé orðið hluti af konunglegu stofnuninni. „Þegar við kynntum okkur starfsemi hinnar konunglegu stofnunar og það gríðarlega safn af sögulegum ljósmyndum sem þeir höfðu í Everest safni sínu vildum við strax finna leiðir til að koma þeim á framfæri í VR upplifun okkar, og þá sér í lagi myndirnar af 1953 leiðangrinum þannig að menn gætu áttað sig betur á þessum sögulega atburði í sókn manna til að kanna hið óþekkta. Hinn einstaki hæfileiki sýndarveruleika til að flytja fólk á annars ómögulega staði er eitthvað sem við trúum sterklega á og er það okkur mikill heiður að þessi virðulega stofnun sjái einnig þarna mikla möguleika til að styðja við sinn tilgang.“
Alasdair MacLeod, yfirmaður Enterprise and Resources hjá stofnuninni, segir að mikil ánægja sé sömuleiðis innan hennar með gjöfina. „ það að setja sögulegt myndefni úr safni okkar í samhengi við landsslagið sjálft í sýndarveruleika gefur áhorfanda allt aðra upplifun og skilning.“
Sólfar Studios, var stofnað í Reykjavík í október 2014 af reynsluboltum úr tölvuleikjaiðnaðinum, og hefur það að markmiði sínu að þróa og gefa út sýndarveruleikaupplifanir. Sólfar eru með nokkrar vörur í þróun fyrir allar tegundir VR tækja, þar á meðal PlayStation VR, HTC Vive og Oculus Rift.