Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 2016 var 65,9 milljarðar á grunnverði það er að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum og jókst um 2,2 prósent á árinu.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Virði afurða búfjárræktar er talið vera 44,3 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 10,8 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru tæpir 17,8 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 316 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 44,3 milljarðar árið 2016 og jókst um 6,9 prósent frá fyrra ári.
Aukningu í framleiðsluvirði árið 2016 má rekja til magnbreytinga. En breytingu á notkun aðfanga má rekja til 5,9 prósent magnaukningar og eitt prósent hækkunar á verði. „Framleiðsluverðmæti landbúnaðarins árið 2015 er metið 64,6 milljarða á grunnverði miðað við uppfærðar tölur og er það heildarlækkun um 2,4% frá fyrra árinu, 2014. Þessa lækkun má rekja til 0,1% magnaukningar og 2,6% lækkunar á verði,“ segir í umfjöllun um málið á vef Hagstofunnar.