Forstjóri Kviku neitar því að bankinn hafi lækkað Icelandair

Sigurður Atli Jónsson segir engan fót fyrir því að Kvika banki hafi unnið gegn Icelandair með skipulögðum hætti, enda væri það ólöglegt.

Sigurður Atli Jónsson forstjóri Kviku
Auglýsing

Sig­urður Atli Jóns­son, for­stjóri Kviku banka, neitar því að bank­inn sem hann stýrir hafi að nokkru leyti unnið mark­visst að því að lækka bréf í Icelandair á síð­ustu viku. Þetta kemur fram í við­tali við hann í Við­skipta­blað­inu í dag.

Bréf í Icelandair tóku skarpa dýfu í lok jan­úar síð­ast­liðnum í kjöl­far þess að félagið sendi frá sér afkomu­við­vör­un. Alls hafa hluta­bréf í félag­inu lækkað um 30 pró­sent frá 25. jan­úar og um 58 pró­sent frá því í apríl 2016.

Innan Icelandair telja stjórn­end­ur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans, að dýfan hafi verið allt of mikil miðað við hver staða félags­ins er og orðrómur hefur verið á mark­aði um að ein­hverjir hafi beitt sér sér­stak­lega fyrir því að lækka virði bréfa í Icelandair í við­skipta­legum til­gangi. Á meðal þeirra sem oft­ast eru nefndir í því sam­hengi er Kvika banki.

Auglýsing

Sig­urður Atli hafnar því alfarið í Við­skipta­blað­inu í dag að fótur sé fyrir þeim orðrómi. „Sem fjár­fest­inga­banki og leið­andi aðili í mark­aðsvið­skiptum sinnum við auð­vitað heil­miklu af hluta­bréfa­við­skiptum í þeim félögum sem skráð eru á mark­að. Það eru alltaf jafn­miklar fjár­hæðir á bak við kaup og sölu og það er eng­inn fótur fyrir því að við höfum unnið gegn félag­inu með skipu­lögðum hætti, enda væri það ólög­legt. Það er mjög eðli­legt að gengi hluta­bréfa hreyf­ist á mörk­uð­um, þar spila vænt­ingar fjár­festa inn í. Okkur hafa ekki borist neinar ásak­anir hingað til og alls ekki frá félag­inu sem slíku. Þarna er eitt­hvað úr lausu lofti grip­ið.“

Hann segir mögu­legt sé að ráð­gjöf Kviku til við­skipta­vina sinna á ein­hverjum tíma­punkti hafi verið sú að selja frekar bréf í Icelandair en að kaupa. Það hafi hins vegar bara verið mjög góð ráð­gjöf í ljósi nið­ur­stöð­unn­ar.

Valda­bar­átta framundan á aðal­fundi

Mikil valda­bar­átta á sér stað innan Icelandair sem stendur og talið er mjög lík­legt að reynt verði að hrista upp í stjórn félags­ins á kom­andi aðal­fundi, sem fram fer 3. mars. Í Frétta­blað­inu í dager greint frá því að hópur einka­fjár­festa, sem sam­anstendur meðal ann­ars af við­skipta­fé­lög­unum Finni Reyr Stef­áns­syni og Tómasi Krist­jáns­syni, eigi nú um 1,5 pró­sent hlut í Icelandair og hygg­ist tefla Ómari Bene­dikts­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Air Atl­anta og Smart­Lynx í Lett­landi, fram til stjórn­ar­kjörs á aðal­fund­in­um. Kvika hafði milli­göngu um kaup þeirra á bréfum í Icelandair á síð­ustu dög­um.

Þessi hópur leitar nú stuðn­ings ann­arra hlut­hafa við fram­boð Ómars til stjórn­ar­inn­ar. Sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarn­ans er vilji hjá hluta fjár­festa í Icelandair að skipta út Sig­urði Helga­syni úr stóli stjórn­ar­for­manns Icelandair og Katrínu Olgu Jóhann­es­dótt­ur, sem setið hefur í stjórn­inni frá árinu 2009.

Í nýju verð­mati sem Grein­ing­ar­deild Arion banka hefur unnið um Icelanda­ir, og Kjarn­inn hefur undir hönd­um, kemur fram það mat að bréf í félag­inu séu und­ir­verð­lögð. Gengi bréf­anna eru sem stendur 16,3 krónur á hlut en Arion banki telur virði þeirra vera 19 krónur á hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None