Nýja stjórn Icelandair Group skipa þau Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Georg Lúðvíksson, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Ómar Benediktsson og Úlfar Steindórsson. Úlfar, sem er forstjóri Toyota á Íslandi, er jafnframt nýr stjórnarformaður félagsins.
Markaðsvirði Icelandair hefur fallið hratt á undanförnu ári. Virði þess við lokun markaða í dag var 75 milljarðar en um mitt ár í fyrra var það 189 milljarðar.
Í byrjun ársins hrundi virðið um 25 prósent á einungis tveimur viðskiptadögum, en það gerðist eftir að félagið sendi frá sér tilkynningu um versnandi rekstrarhorfur fyrir árið í ár.
Þessi risi í ferðaþjónustu á Íslandi er þó með afar sterkan fjárhag, en eigið fé félagsins nú 568 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur um 70 milljörðum króna.