Karl og Steingrímur Wernerssynir og Guðmundur Ólason, sem allir hafa verið kenndir við Milestone, voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi Milestone 5,2 milljarða vegna millifærsla sem voru gerðar á reikning Ingunnar Wernersdóttur, systur bræðranna, en með því létu þeir félagið fjármagna kaup sín á hlutafé Ingunnar í Milestone.
Áður höfðu þremenningarnir hlotið fangelsisdóm vegna viðskiptanna, en Hæstiréttur felldi dóm í málinu 28. apríl í fyrra.
Karl fékk þriggja og hálfs árs dóm en Steingrímur tveggja ára dóm. Málarekstur héraðssaksóknara snérist um að greiðslur upp á 4,8 milljarða króna sem runnu út úr félaginu Milestone, sem bræðurnir áttu og stýrðu, til Ingunnar Wernersdóttur, systur þeirra, á árunum 2006 og 2007, hefðu verið umboðssvik. Karl, Steingrímur og Guðmundur Ólason, fyrrum forstjóri Milestone, voru ákærðir fyrir að hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að greiða Ingunni þessa upphæð út úr Milestone til að losa hana undan eign sinni í félaginu. Auk þeirra voru þrír endurskoðendur hjá KPMG ákærðir í málinu vegna ætlaðra bókhaldsbrota.
Guðmundur var framkvæmdastjóri Milestone á þessum tíma sem greiðslurnar voru inntar af hendi og færðar í bókhald og var með prókúru fyrir félagið. Bræðurnir voru aftur á móti eigendur þess. Segir í dómnum að þeir hafi því allir samkvæmt stöðum sínum hjá félaginu getað bakað sér bótaábyrgð.
Í dómi héraðsdóms segir meðal annrs: „Aðilar máls þessa hafa ekki fært sönnur á að atvik hafi verið önnur en hér er lýst. Í þessu ljósi verður að leggja til grundvallar að Milestone ehf. hafi með framangreindum ráðstöfunum verið látið greiða kaupverð hlutabréfanna samkvæmt samningunum 4. desember 2005, sem hafi við kaupin orðið eign stefndu Karls og Steingríms, án þess að leitast væri við að tryggja þá augljósu hagsmuni félagsins að það fengi fjármunina greidda til baka eða að öðrum kosti eitthvert endurgjald er svaraði kaupverðinu. Breytir engu í því sambandi þó að reynt hafi verið að láta Milestone Import Export Ltd., er laut yfirráðum stefndu Karls og Steingríms, taka á sig skyldu til að greiða Milestone ehf. þessa fjármuni til baka, enda gat krafa Milestone ehf. á hendur því félagi í raun ekki verið neins virði. Þessar ráðstafanir voru bersýnilega til þess fallnar að afla hluthöfum Milestone ehf., stefndu Karli og Steingrími, ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað félagsins, auk þess að fela í sér misnotkun á aðstöðu innan félagsins í viðskiptum með hluti í því og öðrum félögum innan sömu samstæðu,“ segir í dómi héraðsdóms.
Ekki liggur fyrir hvort dómnum verður áfrýjað til Hæstaréttar.