Segir afnám hafta ekkert hafa með sölu Arion banka að gera

Bjarni Benediktsson segir að engir fyrirvarar hafi verið í viðskiptum við þá sem seldu aflandskrónur í fyrrasumar sem þeir geti nýtt til að sækja bætur til íslenskra stjórnvalda.

7DM_4445_raw_1651.JPG
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þær ákvarð­anir um afnám hafta og það sam­komu­lag sem gert hefur verið við aflandskrónu­eig­endur um kaup á krónum þeirra hafi ekk­ert með fyr­ir­hug­aða sölu á Arion banka að gera. Hann viti til þess að til standi að skrá Arion banka á markað og að hluti þeirra sjóða sem eigi bank­ann í dag hafi hug á að taka þátt í kaupum á hluta af þeim bréf­um. Bjarni seg­ist geta tekið undir það sjón­ar­mið að það sé ekki skyn­sam­legt að leita að skamm­tíma­eig­endum að bönk­unum en vænt­an­legir eig­endur verði ein­fald­lega að upp­fylla skil­yrði laga og kom­ast í gegnum „nál­ar­auga“ Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem meti hæfi eig­enda. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna í Kast­ljósi í kvöld.

Helgi Seljan spurði Bjarna ítrekað hvort að hann ótt­að­ist að þeir aflandskrónu­eig­endur sem tóku þátt í aflandskrón­u­út­boði Seðla­banka Íslands sum­arið 2016, og seldu krón­urnar sínar á geng­inu 190 gagn­vart evru, myndu reyna að sækja bætur vegna þess hagn­aðar sem þeir urðu af. Þeim aflandskrónu­eig­endum sem neit­uðu að taka þátt í útboð­inu býðst ný að selja krón­urnar sínar á geng­inu 137,5 krónur fyrir hverja evru, eða á 38 pró­sent betri kjörum en voru í boði í útboð­inu í júní 2016. Nú þegar hafa eig­endur 90 millj­arða króna tekið þessu til­boði en enn standa eftir 105 millj­arðar króna í eigu þessa hóps, sem að mestu eru banda­rískir vog­un­ar­sjóð­ir. Í mái 2016 voru sam­þykkt lög þess efnis að eignir þeirra yrðu settar inn á vaxta­lita reikn­inga ef þeir myndu ekki ganga að skil­málum stjórn­valda, og selja á geng­inu 190 í útboð­unum í júní 2016. Til við­bótar áttu þeir að „fara aft­ast í röð­ina“ þegar kæmi að hafta­los­un.

Bjarni sagð­ist ekki ótt­ast slíkar kröf­ur. Engir fyr­ir­varar hafi verið í útboð­unum í fyrra og um hafi verið að ræða frjáls við­skipti. Hann hafn­aði einnig ásök­unum um að verið væri að færa vog­un­ar­sjóðum mik­inn ávinn­ing með því að hleypa þeim út í stað þess að standa í lapp­irnar gagn­vart þeim. Engin hafi séð styrk­ingu krón­unnar fyrir og í henni liggi mesta virð­is­aukn­ingin sem vog­un­ar­sjóð­irnir séu að fá. Álagið sem lagt er ofan á skráð gengi er þó umtals­vert lægra nú en það var sum­arið 2016. Þá var gengið sem var í boði 37 pró­sent hærra en skráð gengi en nú er það um 20 pró­sent.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None