Komu sér ekki saman um refsiaðgerðir

Utanríkisráðherrar G7 ríkjanna samþykktu ekki tillögu Breta um að beita Rússa frekari refsiaðgerðum vegna efnavopnaárásarinnar í Sýrlandi. Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú kominn til Rússlands til fundar við Sergei Lavrov.

Fulltrúar ESB, Þýskalands, Bandaríkjanna, Kanada, Ítalíu, Frakklands, Bretlands og Japans.
Fulltrúar ESB, Þýskalands, Bandaríkjanna, Kanada, Ítalíu, Frakklands, Bretlands og Japans.
Auglýsing

G7 ríkin komu sér ekki saman um auknar refsi­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi á fundi sínum í gær og í dag. Boris John­son, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, hafði lagt fram til­lögu þess efnis að refsi­að­gerðir yrðu hertar vegna efna­vopna­árá­sinnar í Idlib-hér­aði í Sýr­landi í síð­ustu viku. Sýr­lensk stjórn­völd, sem Rússar hafa aðstoðað í stríð­inu í Sýr­landi, eru sögð bera ábyrgð á árásinn­i. 

Ang­el­ino Alfano, utan­rík­is­ráð­herra Ítal­íu, sagði eftir fund­inn að G7 hóp­ur­inn vildi ekki stilla Rússum upp við vegg, heldur kysi frekar sam­ræður við þá, sam­kvæmt BBC. Fund­ur­inn var hald­inn í borg­inni Lucca á Ítal­íu. Ríkin telji að Rússar hafi þau áhrif sem þarf til að þrýsta á Bashar al-Assad og fá hann til þess að virða vopna­hlé. 

Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fór beint af fund­inum til Moskvu, þar sem hann mun funda með stjórn­völd­um. Fundur G7 ríkj­anna var ætl­aður til þess að stilla saman strengi ríkj­anna gagn­vart Sýr­landi fyrir þann fund. 

Auglýsing

Þrátt fyrir að ekki hafi náðst sam­komu­lag um refsi­að­gerðir sagði Boris John­son að hann liti ekki á það sem ósig­ur. Það væri sam­komu­lag um refsi­að­gerðir ef frek­ari sann­anir fyrir ábyrgð­inni á efna­vopna­árásinni fengjust. 

Þá voru utan­rík­is­ráð­herr­arnir sam­mála um fram­tíð Assad Sýr­lands­for­seta. „Það er okkur öllum ljóst að valda­tíð Assa­d-­fjöl­skyld­unnar er að líða undir lok,“ sagði Tiller­son. Hann hlaut einnig stuðn­ing á fund­inum við eld­flauga­árás Banda­ríkja­manna, sem þeir gerðu á her­flug­völl til að bregð­ast við efna­vopna­árásinni sem varð 89 að bana. 

Tiller­son sagði eld­flauga­árás­ina hafa verið nauð­syn­lega sem varn­ar­mál í Banda­ríkj­un­um. Það mætti ekki til þess hugsa að efna­vopn sýr­lenskra stjórn­valda lentu í fórum Íslamska rík­is­ins eða ann­arra hryðju­verka­hópa sem gætu og vildu ráð­ast á Banda­ríkin eða banda­menn þeirra. Hann er nú kom­inn til Moskvu, og mun funda með Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, á morg­un. 

Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti ræddi við blaða­menn í dag og líkti ásök­un­unum um efna­vopna­árás­ina við það þegar sagt var að Saddam Hussein, þáver­andi ein­ræð­is­herra Íraks, byggi yfir miklu magni efna­vopna. Það reynd­ist síðar ekki vera rétt. „Þetta minnir mig á atburð­ina 2003 þegar erind­rekar Banda­ríkj­anna hjá Örygg­is­ráð­inu sýndu það sem þeir sögðu að væru efna­vopn sem fund­ust í Írak. Við höfum séð þetta allt áður,“ sagði Pútín við blaða­menn í dag. 

Pútín sagði líka að Rússar hefðu upp­lýs­ingar um það að Banda­ríkja­menn áform­uðu fleiri eld­flauga­árásar á Sýr­land, og að áform væru uppi um að setja á svið fleiri efna­vopna­árás­ir. Það ætti að koma fyrir efna­vopnum og kenna sýr­lenskum stjórn­völdum um. Hann færði engar sönnur á þetta. 

Pútín sagði jafn­framt að Rússar myndu óska eftir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar rann­sök­uðu efna­vopna­árás­ina í Idlib. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None