Ólöf Skaftadóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, við hlið Andra Ólafssonar, og munu þau deila með sér fréttastjórn á blaðinu. Ólöf hefur starfað um nokkura ára skeið hjá 365 miðlum, meðal annars sem blaðamaður, umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins og við ritstjórn á 19:10, opna glugganum á Stöð 2 sem kemur á eftir kvöldfréttum stöðvarinnar.
Frá þessu var greint í tölvupósti til starfsmanna blaðsins í dag. Kjartan Hreinn Njálsson mun taka við ritstjórn 19:10. Ólöf er dóttir Kristínar Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra fréttastofu 365 og útgefanda Fréttablaðsins.
Miklar breytingar eru framundan innan 365. Fyrir mánuði síðan var tilkynnt um að Fjarskipti, móðurfélag Vodafone á Íslandi, hefði undirritað samning um kaup á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins. Kaupverðið er 7.725-7.875 milljónir króna. Það greiðist í reiðufé, með útgáfu nýrra hluta í Fjarskiptum og yfirtöku á 4,6 milljarða króna skuldum.
Sú breyting var gerð á fyrra samkomulagi að Fjarskipti eru ekki bara að kaupa ljósvaka- og fjarskiptaeignir 365 miðla. Nú bættust bæði fréttavefurinn Vísir.is og fréttastofa 365, að undanskilinni ritstjórn og rekstri Fréttablaðsins, í kaupin. Áður ætlaði Fjarskipti einungis að kaupa sjónvarps- og útvarpsstöðvar 365 auk fjarskiptahluta fyrirtækisins. Helstu sjónvarpsstöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin. Helstu útvarpsstöðvar eru Bylgjan, FM957 og X-ið.
Fréttablaðið verður áfram í eigu 365 miðla. Það verður tímaritið Glamour einnig. Engar breytingar verða á eignarhaldi þess félags. Eftirlitsaðilar fara nú yfir viðskiptin og er búist við niðurstöðu þeirra síðsumars eða í haust.