Andri Valur Ívarsson, lögfræðingur hdl., hefur verið ráðinn lögmaður Bandalags háskólamanna (BHM). Hann er fæddur árið 1980 og lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2014 en hefur einnig lokið bakkalárprófi í hagfræði frá sama skóla.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM.
Hann hefur verið lögfræðingur og hagfræðingur Þjónustuskrifstofu FFSS frá árinu 2015 en starfaði áður m.a. hjá Umboðsmanni skuldara og Þekkingarneti Þingeyinga á Húsavík. Sem lögmaður BHM mun Andri m.a. sinna ráðgjöf um lögfræðileg efni til bandalagsins og aðildarfélaga þess og annast túlkun kjarasamninga, laga og reglna er varða vinnuréttar- og stjórnsýslumál, að því er segir í tilkynningu frá BHM.
Þá mun Andri Valur sinna úrlausn einstaklingsmála félagsmanna aðildarfélaganna, fræðslu um lögfræðileg málefni og sitja sem fulltrúi bandalagsins í ýmsum nefndum um vinnumarkaðstengd málefni.
Andri tekur við starfinu af Ernu Guðmundsdóttur sem nýlega var ráðin framkvæmdastjóri BHM.
Bandalag háskólamanna eru samtök 27 fag- og stéttarfélaga háskólamenntaðs fólks með samtals rúmlega tólf þúsund félagsmenn innan sinna raða. Félagsmenn starfa á öllum sviðum íslensks atvinnulífs, jafnt hjá ríki, sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum og einkafyrirtækjum.