Engum sektum verið beitt vegna brota á auglýsingum heimagistinga

Sýslumannsembætti Höfuðborgarsvæðisins var úthlutað auknum fjármunum til að standa straum af kostnaði við hert eftirlit með heimagistingum.

Sýslumannsembættið á höfuðborgarsvæðinu hefur um þrjú hundruð heimagistinga á skrá
Sýslumannsembættið á höfuðborgarsvæðinu hefur um þrjú hundruð heimagistinga á skrá
Auglýsing

Engar sektir hafa verið gefnar út af hálfu sýslu­manns­emb­ætt­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna aug­lýs­inga á heimagist­ingu. Í nýjum lög­um, sem tóku gildi um ára­mót­in, segir að í öllum aug­lýs­ingum á starf­semi skráðrar heimagist­ingar skuli skrán­ing­ar­númer koma fram. Í reglu­gerð er þó veitt und­an­þága frá því að núm­erið sé lesið upp í útvarpi. Ef skrán­ing­ar­skyld starf­semi er aug­lýst án skrán­ing­ar­núm­ers getur það varðað sekt allt að einni milljón króna. 

Sýslu­manns­emb­ætt­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er falið eft­ir­lit með skrán­ing­ar­skyldum heimagist­ingum á lands­vísu. Eft­ir­litið felur meðal ann­ars í sér að fylgst er með bók­un­ar­síðum á borð við Air­bnb og book­ing.com. Þetta kemur fram í svari sýslu­manns­emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurnum Kjarn­ans. Einnig kemur fram í svari emb­ætt­is­ins að í fjár­lögum hafi verið gert ráð fyrir auknum fjár­veit­ingum til að sinna eft­ir­lits­hlut­verk­inu. Ekki feng­ust svör við hversu háar þær fjár­veit­ingar voru, en í umsögn emb­ætt­is­ins með frum­varpi lag­anna er áætl­aður árlegur kostn­aður með eft­ir­lit­inu 23.670.000 krón­ur. Auk þess var gert ráð fyrir rúm­lega níu millj­óna króna stofn­kostn­aði, meðal ann­ars vegna upp­setn­ingu á vef­síðu og for­rit­unar vinnu.

Í óform­legri athugun Kjarn­ans á skrán­ing­ar­núm­erum, sem aðgengi­leg eru á heima­síðu sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, komu skrán­ing­ar­númer hvergi fram í aug­lýs­ing­um. Af þeim tutt­ugu gist­ingum sem flett var upp var aðeins ein aug­lýs­ing þar sem hluti skrán­ing­ar­núm­ers kom fram. Í þeirri aug­lýs­ingu komu aðeins fyrstu tveir bók­stafirn­ir, HG-, fram en öll skrán­ing­ar­núm­erin eiga þessa upp­hafs­stafi sam­eig­in­lega, rest­ina af núm­er­inu vant­aði.

Auglýsing

Við­brögð við gagn­rýni á eft­ir­lit

Sam­kvæmt svari sýslu­manns­emb­ættis höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru breyt­ing­arnar á lög­unum til þess ætl­aðar að bregð­ast við gagn­rýni á skort á eft­ir­liti með heimagist­ingu. Einnig var þeim ætlað að bregð­ast við þróun á gistifram­boði og leyf­is­lausri starf­semi, meðal ann­ars með því að ein­falda reglu­verkið í kringum mála­flokk­inn. Sam­kvæmt lög­unum mega tekjur af heimagist­ingu ekki vera hærri en tvær millj­ónir króna á ári og aðeins er heim­ilt að selja 90 gistinæt­ur. Með­al­verð gistinætur er því 22 þús­und krón­ur. 

Í umfjöllun á vefnum turist­i.is kemur fram að með­al­verð gistinætur í heimagist­ingu er fjórum sinnum lægra í Sví­þjóð, en þar er með­al­verðið rúmar fimm þús­und krón­ur. Einnig kemur fram á turist­i.is að erfitt sé að fylgj­ast nákvæm­lega með hver veltan á þessum mark­aði er hér á landi þar sem tekjur á mark­aðnum eru taldar upp með mis­mun­andi hætti. Dæmi eru um að tekjur vegna heimagist­ingar hafi verið rang­lega atvinnu­greina­merktar og í ein­hverjum til­vikum gefnar upp sem venju­legar leigu­tekj­ur.

Sam­kvæmt nýju lög­unum er aðeins hægt að skrá til heimagist­ingar hús­næði sem skrán­ing­ar­að­ili hefur til per­sónu­legra afnota. Ef skrán­ing­ar­að­ili er ekki eig­andi fast­eign­ar­innar sem skráð er þarf hann að hafa þar lög­heim­ili og sam­þykki eig­anda fast­eign­ar­innar að liggja fyr­ir. Einnig getur eig­andi fast­eignar skráð fast­eign aðra en lög­heim­ili sitt til heimagist­ingar en ef svo ber undir má eng­inn annar vera skráður þar til lög­heim­il­is. Ef fast­eignin upp­fyllir ekki þessi skil­yrði eða fer fram úr fjölda leyfi­legra gistinótta eða leyfi­legum hámarks­tekjum telst hún vera atvinnu­hús­næð­i. 

Við nán­ari athugun blaða­manns Kjarn­ans á fyrr­nefndum skrán­ing­ar­núm­erum kom í ljós að fyrsta skrán­ing­ar­núm­erið sem gefið var út til­heyrði íbúð sem aug­lýst er ásamt tveimur öðrum íbúðum á sam­eig­in­legu vef­svæði og undir sam­eig­in­legu nafni. Önnur þeirra íbúða er einnig skráð sem heimagist­ing hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu hin ekki. Verð á þeim gist­ingum eru frá tæp­lega 22 þús­und krónur til rúm­lega 50 þús­und króna hver nótt. Einnig fund­ust dæmi um sveitag­ist­ingar þar sem aug­lýstar voru gistinætur allt árið í kring og verð­skrá gefin upp bæði fyrir vetrar og sum­ar­tíma. Í engum þess­ara til­fella kom skrán­ing­ar­númer fram í aug­lýs­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None