Bandarísku fjárfestingarsjóðirnir sem hafa fallið frá málshöfðun á hendur íslenska ríkinu vegna löggjafar um meðferð aflandskrónueigna, fengu 137,5 krónur á evru í viðskiptum sínum við Seðlabankann. Það er sama gengi og aðrir aflandskrónueigendur hafa fengið nýlega. Þeir gerðu samkomulag við Seðlabanka Íslands í mars síðastliðnum, og voru hluti af 90 milljarða kaupum sem þá voru tilkynnt.
Þetta kemur fram í svari Seðlabanka Íslands við fyrirspurn Kjarnans um málið. Seðlabankinn svaraði því ekki nánar hversu há upphæð um er að ræða í samkomulagi þessara fjögurra sjóða, aðeins að það hafi verið hluti af 90 milljörðunum.
Tilkynnt var um það í gær að sjóðirnir hefðu fallið frá málshöfðun á hendur ríkinu í ljósi þess að þeir hefðu náð samkomulagi við Seðlabankann. Sjóðirnir, undir forystu Autonomy Capital, höfðu fengið heimild frá Hæstarétti til að leggja spurningar fyrir dómkvadda matsmenn vegna málsins. Hæstiréttur hafði heimilað þeim að bera upp fimm af ellefu matsspurningum sem þeir fóru fram á að fá rökstutt álit sérfrórða aðila á.
Í bréfi frá fulltrúum þessara sjóða til ríkislögmanns segir að í ljósi samkomulags Seðlabanka Íslands og sjóðanna um kaup bankans á aflandskrónum þeirra hafi verið ákveðið að falla frá beiðninni. Því er nú enginn útistandandi málarekstur á hendur ríkinu vegna framkvæmdar áætlunar stjórnvalda um afnám fjármagnshafta, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Sjóðirnir höfðu hótað málaferlunum eftir að Alþingi samþykkti aflandskrónufrumvarp Bjarna Benediktssonar fyrir tæpu ári síðan, og aflandskrónueigendum voru settir afarkostir. Þá var þeim boðið að komast frá Íslandi með því að borga 190 krónur fyrir hverja evru, ef þeir gengu ekki að því færu þeir aftast í röðina við losun fjármagnshafta og eignir þeirra settar inn á nær vaxtalausa reikninga.
Flestir aflandskrónueigendur neituðu að taka þátt í þessu, en þess í stað fólu þessir sjóðir lögmönnum að kanna grundvöll fyrir málshöfðun á hendur íslenska ríkinu, auk þess sem kvartað var til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna laganna.
Nú í vor hafa fulltrúar íslenskra stjórnvalda svo fundað með fulltrúum sjóðanna í aðdraganda afnáms haftanna. Þeim hefur boðist að greiða 137,5 krónur fyrir hverja evru, hagstæðara en þeim bauðst fyrir tæpu ári. Það er á því verði sem þessir sjóðir gerðu samkomulag sitt.