H&M opnar í Smáralind í ágúst

Fyrsta verslun fatarisans sem opnar hérlendis mun verða 3.000 fermetrar, staðsett í Smáralind og selja allar fatalínur H&M.

Auglýsing
Filip Ekvall, svæðisstjóri H&M í Noregi og á Íslandi.
Filip Ekvall, svæðisstjóri H&M í Noregi og á Íslandi.

Fyrsta H&M versl­unin á Íslandi verður opnuð í Smára­lind í ágúst. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá versl­ana­keðj­unni. Þar er haft eft­ir Filip Ekvall svæð­is­stjóra, H&M í Nor­egi og á Íslandi, að versl­un­ar­keðjan hafi lengi vitað að beðið hafi verið eftir komu hennar hingað til lands. Hann segir í til­kynn­ingu að fyr­ir­tækið hlakki mikið til að geta hrifið með sér þjóð­ina og staðið undir vænt­ing­um.

Búið er að ráða starfs­fólk í fyr­ir­hug­aðar versl­anir H&M á Íslandi og segir Ekvall að keðjan hafi fundið frá­bært teymi. Versl­unin sem opnuð verður í Smára­lind í ágúst mun bjóða upp á allar fata­línur H&M, þar á með­al dömu- og herrafatn­að, barna­föt, skó, auka­hluti, und­ir­föt og snyrti­vör­ur. Auk þess mun versl­unin fá sér­stakar línur í sölu eins og H&M Studio og Consci­ous Exclusi­ve.

Alls er fyr­ir­hugað að opna þrjár H&M versl­anir hér­lend­is. Hinar tvær verða ann­ars vegar í Kringl­unni og hins vegar á Hafn­ar­torgi í mið­borg Reykja­vík­ur. Í Kringl­unni verður opnuð í 2.600 fer­­metra versl­un­­ar­­rými á annarri hæð í norð­­ur­­lenda Kringl­unnar seinni hluta árs 2017. Ára­tugum sam­anb hefur verið rekin Hag­­kaups­verslun í rým­in­u. 

Auglýsing

Þrátt fyrir að H&M, sem er ein stærsta fata­versl­un­­­ar­keðja heims­ins, hafi aldrei rekið verslun hér á landi, þá hafa rann­­­sóknir sýnt að mark­aðs­hlut­­­deild fyr­ir­tæk­is­ins í fata­inn­­­kaupum Íslend­inga er mikil og stöðug. 

Kjarn­inn fjall­aði um stöð­una eins og hún birt­ist hjá not­endum heim­il­is­fjár­­­­­mála­hug­­­bún­­­að­­­ar­ins Meniga, fyrir árið 2013. Tæp 37 pró­­­sent not­enda Meniga versl­aði í H&M. Tekju­hærri hópar versla mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26 pró­­­sent tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­­­­burði við 47 pró­­­sent þeirra tekju­hæstu.

Lít­ill sem eng­inn munur var á með­­­­al­­­­upp­­­­hæð sem keypt var fyrir í hvert sinn eftir tekju­hóp­um, en hún var rúmar 15 þús­und krón­­­ur. Sama má segja um heild­­­­ar­­­­upp­­­­hæð sem þeir vörðu í H&M á árinu 2013, en hún nam að með­­­­al­tali 32 þús­und krón­­­um.

Sé litið til heild­­­ar­innar þá var mark­aðs­hlut­­­deild H&M 22 pró­­­sent í fata­inn­­­kaupum Íslend­inga, þrátt fyrir að engin verslun hafi til þess verið stað­­­sett á land­inu. Lík­­­­­legt verður að telj­­­ast að inn­­­reið H&M hingað til lands geti haft veru­­­leg áhrif á verslun hér á landi, sé mið tekið af þessum töl­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None