Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í allsherjar- og menntamálanefnd eru sameinaðir í gagnrýni sinni á vinnubrögð stjórnvalda við mögulega sameiningu Fjölbrautarskólans við Ármúla og Tækniskólans. Þau segja Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, stefna málinu í ófrið með því að halda því leyndu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá þeim Andrési Inga Jónssyni, þingmanni VG, Eygló Harðardóttur, þingmanni Framsóknarflokksins, Oddnýju Harðardóttur, þingmanni Samfylkingarinnar og Birni Leví Gunnarssyni og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmönnum Pírata. Ráðherrann kom fyrir nefndina í morgun, líkt og Kjarninn greindi frá.
„Fram kom á fundinum að athugun á yfirtöku Tækniskólans á starfsemi FÁ fór af stað strax í febrúar, þ.e. áður en ríkisstjórnin lagði fram fjármálaáætlun sína, þar sem hvergi er minnst á þessar fyrirætlanir. Þá þagði ráðherrann um áformin þegar staða starfs- og verknáms var rædd í þingsal 24. apríl sl.,“ segir meðal annars í yfirlýsingu þingmannanna.
Á fundinum í morgun hafi Kristján Þór einnig staðfest að hann hafi kynnt stjórnarþingmönnum málið áður en RÚV sagði frá því, en stjórnarandstöðuþingmenn vissu ekki af málinu fyrr en í fjölmiðlum. „Erfitt reyndist að fá skýr svör um ýmis álitaefni, eins og t.a.m. hvaða lagastoð ráðherrann telji sig hafa í málinu.“
Þá gagnrýnir minnihlutinn að aðeins yfirtaka Tækniskólans á FÁ hafi orðið fyrir valinu í stað þess að ráðast í heildarstefnumörkum um framhaldsskólastigið. „Það liggur fyrir að hér er um að ræða pólitíska ákvörðun um að einkavæða hluta framhaldsskólakerfisins, því enn hafa ekki komið fram nein fagleg eða rekstrarleg rök að baki valinu á þessum tilteknu skólum. Í stað þess að ráðherrann fylgi yfirlýstum eign áherslum um eflingu verk- og starfsnáms virðist ætlunin að gefast strax upp fyrir verkefninu með því að veikja enn frekar opinbert verk- og starfsnám með yfirtöku Tækniskólans á FÁ.“
Þá segja þingmennirnir að málinu sé stefnt í ófrið með því að halda því leyndu svona lengi, og það sé mikilvægt að ákvaðanir um meiriháttar stefnubreytingar í menntakerfinu séu teknar fyrir opnum tjöldum, með aðkomu kennara og nemenda, og umræðu á þinginu.