Stjórnarformaður Arion banka hættir – Guðrún Johnsen tekur við

Breytingar á eignarhaldi bankans marka þáttaskil, segir Monica Caneman.

Auglýsing
Monica Caneman er hætt í stjórn Arion banka.
Monica Caneman er hætt í stjórn Arion banka.

Mon­ica Caneman hefur ákveðið að láta af stjórn­ar­setu í Arion banka en hún hefur gegnt stjórn­ar­for­mennsku í bank­anum frá árinu 2010. Guð­rún Johnsen, sem hefur verið vara­for­maður á tíma­bil­inu, tekur við sem stjórn­ar­for­maður bank­ans.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka. Í stjórn Arion banka eru auk Guð­rún­ar, Þóra Hall­gríms­dótt­ir, Jakob Ásmunds­son, Brynjólfur Bjarna­son, John P. Madd­en, Kirstín Þ. Flygenring og Måns Höglund.

Mon­ica segir í til­kynn­ing­unni að nýlegar breyt­ingar á eign­ar­haldi marki ákveðin þátta­skil í starf­semi bank­ans. „Ég tók við stjórn­ar­for­mennsku í Arion banka á árinu 2010. Það hefur verið afar ánægju­legt að taka þátt í upp­bygg­ingu bank­ans  á und­an­förnum sjö árum og upp­lifa þær jákvæðu breyt­ingar sem hafa átt sér stað. Þetta hefur verið við­burða­ríkur tími þar sem bank­inn, rétt eins og íslenskt efna­hags­líf, hefur styrkst á öllum svið­um. Arion banki nýtur nú góðrar stöðu á þeim mörk­uðum sem hann starfar og er fjár­hags­lega sterk­ur,“ er haft eftir Mon­icu.

Auglýsing

„Mik­il­væg­asti drif­kraftur bank­ans er frá­bært starfs­fólk sem hefur staðið sig virki­lega vel á und­an­förnum árum við að byggja upp góðan banka. Nýlegar breyt­ingar á eign­ar­haldi bank­ans marka ákveðin þátta­skil. Frek­ari breyt­ingar á eign­ar­haldi munu eiga sér stað á næst­unni og nýr kafli er því að hefj­ast. Ég tel rétt á þessum tíma­punkti að láta öðrum eftir stjórn­ar­for­mennsku. Ég þakka stjórn­ar­mönnum bank­ans, stjórn­endum og starfs­fólki öllu fyrir far­sælt sam­starf á und­an­förnum sjö árum og óska Arion banka vel­farn­aðar í fram­tíð­inn­i,“ segir hún í frétta­til­kynn­ing­u. 

Eftir kaup­in, sem til­kynnt var um í mars, er Kaup­skil, félag í eigu Kaup­­þings, enn stærsti eig­andi Arion banka með 57,9 pró­­sent hlut. Íslenska ríkið á 13 pró­­sent en sjóð­irnir Attestor Capi­­tal LLP (í gegnum Trinity Invesment Designated Acit­i­vity Company) og Taconic Capi­­tal Advis­ors UK LLP (í gegnum TCA New Sidecar III s.a.r.l.) eiga nú 9,99 pró­­sent hlut hvor. Þá mun Sculptor Invest­­ments s.a.r.l. (fé­lag tengt Och-Ziff Capi­­tal Mana­­gement Group) eiga 6,6 pró­­sent hlut og Gold­man Sachs International 2,6 pró­­sent hlut (í gegnum ELQ Investors II Ltd.).

Fjár­mála­eft­ir­litið er nú að vinna að mati á þessum nýju eig­end­um, en auk þess hefur skrán­ing bank­ans á mark­að­verið í und­ir­bún­ingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent