Tekjur Tempo vaxa hratt og starfsemi vex að umfangi

Dótturfélag Nýherja hefur vaxið hratt undanfarin misseri og fjöldi viðskiptavina er nú kominn yfir 10 þúsund.

Tekur Tempo jukust um 46 prósent á fyrsta fjórðungi ársins í ár miðað við í fyrra.
Tekur Tempo jukust um 46 prósent á fyrsta fjórðungi ársins í ár miðað við í fyrra.
Auglýsing

Hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Tempo, dótt­ur­fé­lag Nýherja hefur birt nið­ur­stöður fyrir fyrsta árs­fjórð­ung árs­ins 2017, og juk­ust tekjur félags­ins um 46 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra. 

Heild­ar­tekjur Tempo á tíma­bil­inu námu 4,4 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 470 millj­ónum króna.  

Gengi bréfa Nýherja hækk­aði um 2,99 pró­sent í dag og er mark­aðsvirði Nýherja nú 14,2 millj­arðar króna.

Tekjur Tempo frá stofnun hafa auk­ist sam­fellt og á tíma­bil­inu náð­ist sá áfangi að fjöldi við­skipta­vina fór yfir 10.000.  Tíu­þús­und­asti við­skipta­vin­ur­inn reynd­ist þýska stór­fyr­ir­tækið Mercedes Benz. 

Við erum afar ánægð með árang­ur­inn, umsvifin hafa auk­ist umtals­vert, sem og tekj­urn­ar.  Mercedes Benz bætt­ist í hóp­inn sem 10.000 við­skipta­vin­ur­inn en fyr­ir­tækið keypti allar vörur Tempo fyrir starf­semi sína í Banda­ríkj­unum og bæt­ist þar í hóp með bíla­fram­leið­endum á borð við BMW, Volkswa­gen, Mazda, Audi, Scania, Volvo og Skoda,” segir Ágúst Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Tempo, í til­kynn­ingu.

Vöxt­ur­inn hefur leitt til þess að það stefnir í tvö­földun á starfs­manna­fjölda utan Íslands, en Tempo hefur starfs­stöðvar í Montr­eal í Kanada og San Francisco í Banda­ríkj­un­um. Horf­urnar framundan eru mjög góðar og við gerum ráð fyrir svip­uðum tekju­vexti og upp­bygg­ingu áfram,” segir Ágúst.

Auglýsing

Sam­starfs- og sölu­að­ilar á heims­vísu eru nú komnir yfir 100 tals­ins og nú starfar um fimmt­ungur starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins í Norð­ur­-Am­er­íku. Gert er ráð fyrir enn frek­ari fjölgun starfs­manna hjá fyr­ir­tæk­inu á kom­andi miss­er­um.

Tempo þróar hug­bún­að­ar­lausnir sem er ætlað að hjálpa fyr­ir­tækjum af öllum stærðum og gerðum að vinna á auð­veld­ari og skil­virk­ari hátt. Við­skipta­vinir Tempo eru fyr­ir­tæki um allan heim, allt frá sprota­fyr­ir­tækjum í Fortune 500 fyr­ir­tæki, eins og Amazon, BMW, Pfiz­er, HomeAway, PayP­al, Hulu, Dell, Mercedes Benz, Star­bucks, Porsche og Dis­n­ey. Tempo er dótt­ur­fé­lag Nýherja og var form­lega stofnað 1. febr­úar 2015. Hjá Tempo vinna um 90 starfs­menn, bæði á Íslandi og í Norður Amer­íku.

Kjarn­inn heim­sótti fyr­ir­tækið fyrir þremur árum, þegar það var að hefja sig til flugs, ef svo má segja. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent