86 manns verður sagt upp störfum hjá HB Granda á Akranesi fyrir næstu mánaðamót. Þetta var tilkynnt á fundi með trúnaðarmönnum í dag, og kemur einnig fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar.
Í tilkynningunni kemur fram að viðræður við Akraneskaupstað undanfarið hafi nýst vel en ekki breytt áformum fyrirtækisins um að sameina botnfiskvinnsluna á Akranesi við botnfiskvinnsluna í Reykjavík. Það verður gert þann 1. september næstkomandi.
„Samtímis og jafnframt verður starfsfólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótturfélögum í Reykjavík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfsfólki sem þess óskar starf við hæfi,“ segir í tilkynningu HB Granda. Þar segir jafnframt að starfsfólk sem ekki fær vinnu við hæfi muni fá aðstoð við atvinnuleit á vegum fyrirtæksisins.
Áfram verður önnur starfsemi fyrirtækisins og dótturfélaga á Akranesi, og fyrirtækið segist ætla að leggja kraft í að efla þá starfsemi og fullvinnslu sjávarafurða á Akranesi.
Tilkynningin til Kauphallarinnar er hér að neðan.
Á fundi trúnaðarmanna HB Granda og forsvarsmanna HB Granda á Akranesi 11. maí 2017, var farið yfir áform um að leggja af fiskvinnslu í botnfiskvinnslu sinni á Akranesi. Að höfðu samráði við fulltrúa starfsmanna og stéttarfélaga hafa staðið yfir viðræður við Akraneskaupstað og einnig hafa fengist upplýsingar frá Faxaflóahöfnum og Reykjavíkurborg. Viðræðurnar hafa nýst vel til gagnkvæmra upplýsinga og munu gagnast aðilum til framtíðar.
Niðurstaða viðræðna hefur þó ekki breytt þeim áformum HB Granda að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við botnfiskvinnslu félagsins í Reykjavík þann 1. september næstkomandi.
Hjá HB Granda og dótturfélögum á Akranesi starfa 270 manns, þar af vinna 86 við botnfiskvinnsluna sem fá uppsagnarbréf fyrir næstu mánaðamót. Samtímis og jafnframt verður starfsfólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótturfélögum í Reykjavík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfsfólki sem þess óskar starf við hæfi.
Starfsfólk sem ekki fær vinnu við hæfi býðst aðstoð við atvinnuleit á vegum HB Granda. HB Grandi mun hafa samráð við trúnaðarmenn og stéttarfélög þeirra.
HB Grandi rekur eftir sem áður uppsjávarvinnslu, fiskimjölsverksmiðju og dótturfélögin Norðanfisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Félagið mun leggja kraft í að efla þessar rekstrareiningar og fullvinnslu sjávarafurða á Akranesi.
Forráðamenn Akraneskaupstaðar og HB Granda munu halda áfram viðræðum um að standa að frekari uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi. Einn liður í því er að fulltrúar Akraneskaupstaðar í Faxaflóahöfnum beiti sér fyrir því að ráðist verði í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á Akraneshöfn.