HS Orka ætlar að kanna mögulega sölu á hlut sínum í Bláa lóninu, í heild eða að hluta. HS Orka á 30 prósenta hlut í lóninu. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Stöplar Advisory munu ræða við hugsanlega fjárfesta og stýra ferlinu fyrir hönd HS Orku, en í tilkynningunni kemur fram að þessi ákvörðun sé tekin í kjölfarið á sýndum áhuga á hlutnum í Bláa lóninu.
„HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangsmikinn rekstur, dafnar og er enn í verulegum vexti. Þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða og þá fellur starfsemi Bláa Lónsins ekki að kjarnastarfsemi HS Orku sem er framleiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ er haft eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku, í fréttatilkynningunni.