Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, er ósáttur við að ekki hafi náðst að ljúka afgreiðslu frumvarpa til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir (NPA) og um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir þinglok nú í vor. Í þessum frumvarpi felst meðal annars lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, en lögfestingin er „afar mikilvægt réttindamál fyrir fatlaða“ segir í yfirlýsingu frá Þorsteini.
Hann biðst einnig afsökunar á því að hafa sakað stjórnarandstöðuna um að hindra framgang málsins, þegar hið rétta í málinu hafi verið það, að samkomulag hefði verið gert milli minni- og meirihluta um hvaða mál yrðu afgreidd. „Minnihlutinn hefur gagnrýnt ummæli mín í fjölmiðlum, þess efnis að stjórnarandstaðan hafi hindrað framgang málsins. Hvað þetta varðar hefur minnihlutinn réttilega vísað til þess að samkomulag hafi orðið um þessar lyktir mála milli minni- og meirihluta. Ummæli mín eru því á misskilningi byggð og er mér bæði ljúft og skylt að biðjast velvirðingar á því,“ segir í yfirlýsingunni.
Þorsteinn áréttar í yfirlýsingu mikilvægi þess að þessar breytingar verði afgreiddar fljótt og vel, enda mikið í húfi fyrir notendur þeirra þjónustu sem um ræðir og mikilvægt að lágmarka óvissu þegar kemur að málinu. „Þverpólitísk samstaða hefur ríkt um mikilvægi þessarar lagabreytingar og allt meginefni hennar. Þá er ljóst að þrátt fyrir að málið hafi komið inn til Alþingis strax í byrjun apríl hefur velferðarnefnd haft mörg mál á sinni könnu og því haft minni tíma en æskilegt hefði verið til að ljúka þessum tilteknu málum. Þrátt fyrir þröngan tímaramma var hinsvegar unnin mikil vinna bæði í nefnd og í ráðuneyti með hagsmunaaðilum og því stóðu væntingar mínar til að málin myndu klárast núna í þinglok. Það skýrir vonbrigði mín við með þessar málalyktir. Ég fagna því að þverpólitísk samstaða ríkir um að greitt verður fyrir afgreiðslu málanna á haustþingi þannig að þetta mikla framfaraskref fyrir fatlaða fái afgreiðslu í haust,“ segir í yfirlýsingu Þorsteins.