Almar Guðmundsson hefur verið sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Stjórn samtakanna ákvað þetta og var Almari tilkynnt um ákvörðunina í dag. Frá þessu er greint á Vísi.is.
Kjarninn hefur ekki náð sambandi við Almar í dag.
Almar var ráðinn til Samtaka iðnaðarins fyrir þremur árum síðan. Áður stýrði hann Félagi atvinnurekenda um margra ára skeið. Hann er hagfræðingur að mennt og tók við framkvæmdastjórastöðunni hjá Samtökum Iðnaðarins af Kristrúnu Heimisdóttur, þegar henni var sagt upp störfum sumarið 2014.
Uppfært:
Stjórn SI hefur sent frá sér tilkynningu, sem er svohljóðandi:
Stjórn Samtaka iðnaðarins hefur gert starfslokasamning við Almar Guðmundsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra síðastliðin tæp þrjú ár. Almar lætur af störfum frá og með deginum í dag og mun Jón Bjarni Gunnarsson gegna starfi framkvæmdastjóra tímabundið. Almar hefur tekið þátt í að móta nýja stefnu og nýja sýn fyrir samtökin og þakkar stjórnin honum góð störf síðustu ár í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Stjórnin harmar að fréttir af ákvörðuninni hafi birst í fjölmiðlum áður en formleg tilkynning um hana var send út frá samtökunum.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar, þakkar Almari fyrir vel unnin störf. „Stjórn Samtaka iðnaðarins vill færa Almari Guðmundssyni kærar þakkir fyrir störf hans fyrir samtökin sem hann hefur gegnt af trúmennsku og dugnaði. Almar hefur tekið þátt í miklu umbreytingarstarfi hjá samtökunum og gegnt lykilhlutverki í að auka slagkraft þeirra og sýnileika. Stjórnin mat það hins vegar sem svo að þetta væri rétti tímapunkturinn til að leita að nýjum aðila til að leiða daglegt starf samtakanna og byggja ofan á góðan árangur Almars.“