Ísland setur innflytjendum meiri skorður en önnur lönd

Innflytjendamál eru á dagskrá sjónvarpsþáttar Kjarnans í kvöld. Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, er gestur þáttarins.

7DM_4865_raw_1969.JPG
Auglýsing

Inn­flytj­endur mæta öðrum hindr­unum á Íslandi en í öðrum nágranna­löndum okk­ar, og þeim eru settar frek­ari skorð­ur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í sjón­varps­þætt Kjarn­ans á Hring­braut í kvöld. 

Umfjöll­un­ar­efni þátt­ar­ins eru inn­flytj­enda­mál, en Pawel Bar­toszek, þing­maður Við­reisn­ar, er gestur þátt­ar­ins. Hann er annar tveggja þing­manna sem eru af erlendu bergi brotn­ir, og hann telur það skipta máli fyrir umræð­una. 

Pawel segir Ísland setja inn­flytj­endum frek­ari skorður en nágranna­ríkin á nokkrum svið­um. „Það er bara dót sem fólk talar ekki mikið um,“ segir Pawel. 

Auglýsing



„Þessi krafa til dæmis um það í raun­inni að hjúkr­un­ar­fræð­ingur eigi að vera með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt, í fram­kvæmd hefur verið slakað mjög á þessu en þetta er samt ennþá þannig í lög­un­um, þannig að það væri mjög auð­velt að fara til baka ef það yrði stefnu­breyt­ing. Það er einn hlut­ur.“ 

Annað dæmi sem Pawel tekur er um sjálf­stæðan atvinnu­rekst­ur. „Mjög víða eru útlend­ing­ar, eða inn­flytj­end­ur, mjög virkir í sjálf­stæðum atvinnu­rekstri vegna þess að þeir mæta oft for­dómum á hinum almenna vinnu­mark­aði eða hjá hinu opin­bera. Þess vegna spretta upp veit­inga­staðir eða annar rekst­ur, svona etnískur rekst­ur, en hér er í raun­inni í lögum að þeim sem hafa tíma­bundið dval­ar- eða atvinnu­leyfi er óheim­ilt að greiða sér reiknað end­ur­gjald.“ 

Þetta sé hindr­un. „Þannig að það er ekki fyrr en menn eru búnir að vera á Íslandi í þrjú, fjögur ár og eru komnir með var­an­legt dval­ar­leyfi sem þeir mega opna pít­sa­stað, ef þeir eru frá löndum utan Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins. Þetta vita ekki margir og þetta er ekki þannig á hinum Norð­ur­lönd­un­um.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent