Almar Guðmundsson látinn fara frá Samtökum iðnaðarins

Framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins hefur verið sagt upp störfum. Honum var greint frá því í dag.

Almar Guðmundsson
Auglýsing

Almar Guð­munds­son hefur verið sagt upp störfum sem fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins. Stjórn sam­tak­anna ákvað þetta og var Almari til­kynnt um ákvörð­un­ina í dag. Frá þessu er greint á Vísi.­is. 

Kjarn­inn hefur ekki náð sam­bandi við Almar í dag. 

Almar var ráð­inn til Sam­taka iðn­að­ar­ins fyrir þremur árum síð­an. Áður stýrði hann Félagi atvinnu­rek­enda um margra ára skeið. Hann er hag­fræð­ingur að mennt og tók við fram­kvæmda­stjóra­stöð­unni hjá Sam­tökum Iðn­að­ar­ins af Kristrúnu Heim­is­dótt­ur, þegar henni var sagt upp störfum sum­arið 2014. 

Auglýsing

Upp­fært: 



Stjórn SI hefur sent frá sér til­kynn­ingu, sem er svohljóð­and­i: 

Stjórn Sam­taka iðn­að­ar­ins hefur gert starfs­loka­samn­ing við Almar Guð­munds­son sem gegnt hefur starfi fram­kvæmda­stjóra síð­ast­liðin tæp þrjú ár. Almar lætur af störfum frá og með deg­inum í dag og mun Jón Bjarni Gunn­ars­son gegna starfi fram­kvæmda­stjóra tíma­bund­ið. Almar hefur tekið þátt í að móta nýja stefnu og nýja sýn fyrir sam­tökin og þakkar stjórnin honum góð störf síð­ustu ár í þágu sam­tak­anna og óskar honum vel­farn­aðar á nýjum vett­vang­i. Stjórnin harmar að fréttir af ákvörð­un­inni hafi birst í fjöl­miðlum áður en form­leg til­kynn­ing um hana var send út frá sam­tök­un­um.

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, for­maður stjórn­ar, þakkar Almari fyrir vel unnin störf. „Stjórn Sam­taka iðn­að­ar­ins vill færa Almari Guð­munds­syni kærar þakkir fyrir störf hans fyrir sam­tökin sem hann hefur gegnt af trú­mennsku og dugn­aði. Almar hefur tekið þátt í miklu umbreyt­ing­ar­starfi hjá sam­tök­unum og gegnt lyk­il­hlut­verki í að auka slag­kraft þeirra og sýni­leika. Stjórnin mat það hins vegar sem svo að þetta væri rétti tíma­punkt­ur­inn til að leita að nýjum aðila til að leiða dag­legt starf sam­tak­anna og byggja ofan á góðan árangur Almar­s.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent