Aflaverðmæti íslenskra skipa í febrúar var 5,8 milljarðar króna sem er 53,6% minna en í febrúar 2016, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag. Mikill samdráttur í aflaverðmæti skýrist af verkfalli sjómanna sem var aflýst 19. febrúar eftir harðvítugar kjaradeildur frá því í desember.
Á eins árs tímabili frá mars 2016 til febrúar 2017 nam aflaverðmæti íslenskra skipa rúmum 118 milljörðum sem er 19,4% minna en á sama tímabili ári fyrr, að því er segir í umfjöllun Hagstofu Íslands.
Munurinn á verðmæti á ársgrundvelli, frá mars til febrúar, er 28 milljarðar króna.
Auglýsing