Tillaga Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, um skipan dómara við Landsrétt var afgreidd í ágreiningi úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Meirihluti nefndarinnar styður tillögu ráðherrans en minnihlutinn vildi fá meiri tíma til að fara yfir málið og var því ekki sáttur við að málið skyldi afgreitt úr nefndinni í dag.
Í fréttum Stöðvar 2 sagði Birgitta Jónsdóttir, frá Pírötum, að málið snérist um fagleg vinnubrögð þar sem hún teldi að meiri tíma þyrfti til þess að fara yfir það. Birgir sagði hins vegar að meirihluti teldi rökstuðning ráðherra fyrir tillögunni fullnægjandi og styðji hann tillöguna.
Eins og greint var frá á vef Kjarnans í gær, þá mat hæfisnefnd um mat á umsækjendum í stöðu dómara við Landsrétt Davíð Þór Björgvinsson, Sigurð Tómas Magnússon og Ragnheiði Harðardóttur hæfust.
Samkvæmt lista hæfisnefndarinnar var Ástráður Haraldsson hrl., sem hefur talið tillögu dómsmálaráðherra lögbrot - líkt og Lögmannafélag Íslands - númer 14 á listanum. Einn þeirra sem Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, gerir tillögu um að verði á meðal 15 dómurum við Landsrétt er Jón Finnbjörnsson en hann er númer 30 á lista hæfisnefndarinnar. Þá er Eiríkur Jónsson númer 7 á lista hæfisnefndarinnar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráðherra gerir tillögu um í stöðu dómara.
Ástráður Haraldsson og Eiríkur Jónsson, ásamt Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni og Jóni Höskuldssyni hlutu ekki náð fyrir augum ráðherrans heldur þau Arnfríður Einarsdóttir, Ragnheiður Bragadóttir, Ásmundur Helgason og Jón Finnbjörnsson.
Þau 15 sem ráðherra gerir tillögu um í stöðu dómara við Landsrétt eru Aðalsteinn E. Jónasson, Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björgvinsson, Hervör Þorvaldsdóttir, Ingveldur Einarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Jón Finnbjörnsson, Kristbjörg Stephensen, Oddný Mjöll Arnardóttir, Ragnheiður Bragadóttir, Ragnheiður Harðardóttir, Sigurður Tómas Magnússon, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Þorgeir Ingi Njálsson.