Ingólfur Bender hefur verið ráðinn hagfræðingur Samtaka iðnaðarins og hefur hann þegar hafið störf. Hann var einn þeirra stjórnenda sem missti vinnuna hjá Íslandsbanka í uppsögnum hjá honum seint í maí, en Ingólfur var aðalhagfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, og þar áður Glitni, frá árinu 2000.
Áður en Ingólfur tók við þeirri stöðu var hann hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Hann er því að fara aftur í starf sem hann gengdi fyrir tæpum tveimur áratugum. Ingólfur hefur einnig starfað sem kennari við Háskóla Íslands, sem hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu og á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Hann er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og BS gráðu í hagfræði frá sama skóla.
Jón Bjarni Gunnarsson, framkvæmdastjóri SI, segir í fréttatilkynningu að það sé mikill fengur fyrir samtökin að fá Ingólf til starfa. „Við þekkjum vel til Ingólfs frá fyrri árum þegar hann var hagfræðingur samtakanna um árabil. Ingólfur hefur mikla þekkingu á íslensku efnahagslífi og er vel að sér um þær áskoranir sem atvinnulífið stendur frammi fyrir. Það er því verðmætt fyrir Samtök iðnaðarins og aðildarfyrirtæki samtakanna að fá svo reyndan hagfræðing til liðs við sig.“