Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur selt hlut sinn í Já hf., eiganda upplýsingatæknifyrirtækisins Já og rannsóknafyrirtækisins Gallup. Samhliða hættir hún sem stjórnarformaður félagsins. Frá þessu er greint í tilkynningu.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, segir að það hafi verið mikil forréttindi og ánægja að fá að vera samferða Katrínu Olgu í vegferð Já síðustu 12 ár. „Það eru því tímamót í sögu félagsins við brotthvarf hennar. Ég óska Katrínu Olgu velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur.“
Katrín Olga, sem er formaður Viðskiptaráðs Íslands, hefur gegnt stjórnarformennsku hjá Já hf. frá árinu 2005 . Núverandi eigendur hafa keypt hlut hennar og mun varaformaður stjórnar, Einar Pálmi Sigmundsson, taka við formennsku í stjórn félagsins.
Hún segir að ákvörðunin að hætta hjá Já hafi ekki verið auðveld. „Það hafa verið forréttindi að taka þátt í því ævintýri sem rekstur Já hefur verið síðustu 12 árin með öllu þessu frábæra starfsfólki. Á þessum tíma hefur félaginu verið umbreytt frá því að vera sérhæft þjónustufyrirtæki yfir í að vera fyrirtæki sem er drifið áfram af tækni- og markaðshugsun. Ég er á því að sífelldar umbreytingar þroski mann, nú legg ég á vit nýrra ævintýra og mun halda áfram að láta til mín taka í atvinnulífinu?