Lægsta skuldahlutfall ríkisins frá 2008

Heildarskuldir ríkisins námu 69,5% af landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi árið 2017. Skuldahlutfallið er það lægsta frá þriðja ársfjórðungi 2008.

Staða ríkiskassans hefur batnað með stöðugum hætti á síðustu þremur árum.
Staða ríkiskassans hefur batnað með stöðugum hætti á síðustu þremur árum.
Auglýsing

Heild­ar­skuldir rík­is­ins voru 69,5% af áætl­aðri lands­fram­leiðslu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017. Hlut­fallið er það lægsta frá hruni, en það hefur stöðugt lækkað frá fjórða árs­fjórð­ungi 2014.

 Þetta kemur fram í Hag­tíð­indum Hag­stofu sem komu út fyrr í dag. Þar voru fjár­mál hins opin­bera einnig rædd, en hreinar tekjur rík­is­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 námu 17,6 millj­örðum króna. Eru það einnig hæstu árs­fjórð­ungs­tölur þess efnis frá hruni, ef litið er fram hjá ­stöð­ug­leika­fram­lagi frá kröfu­höfum föllnu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna í fyrra.

Hreinar tekjur ríkissjóðs 2008-2017. Heimild: Hagstofa

Stöð­ug­leika­fram­lagið skekkir mynd­ina tölu­vert, en vegna þeirra mæld­ust hreinar tekjur á fyrsta árs­fjórð­ungi árið 2016 um 384,3 millj­arðar króna. Án þeirra hefðu hreinar tekjur rík­is­ins hins vegar verið nei­kvæðar um 13 millj­arða króna, eins og sjá má á mynd að ofan.

Tekju­af­koman er 3,1% af lands­fram­leiðslu árs­fjórð­ungs­ins. Til sam­an­burðar voru hreinar tekj­ur ­rík­is­sjóðs ­nei­kvæðar um 2,5% af lands­fram­leiðslu síð­asta árs, ef stöð­ug­leika­fram­lag er ekki talið með. 

Auglýsing
Tekjuaukning rík­is­ins er ekki til­komin vegna nið­ur­skurðar í rík­is­fjár­mál­um, þvert á móti hefur sam­neysla auk­ist um 1,8% umfram verð­bólgu frá síð­asta árs­fjórð­ungi, auk þess sem launa­kostn­aður hefur auk­ist tölu­vert. Á móti vegur að skatt­tekjur og ­trygg­ing­ar­gjöld til rík­is­ins hafi auk­ist nokk­uð, eða um 7,6% milli ára.

Sam­hliða bættri afkomu rík­is­sjóðs hefur hlut­fall skulda af lands­fram­leiðslu lækkað stöðugt frá árs­lokum 2014. Nú er það komið niður í 69,5% , sem er lægsta skulda­hlut­fall frá hruni. Hæst var í skulda­hlut­fallið í tæpum 110% árið 2011. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent