Kvika gerir tilboð upp á 2,5 milljarða í Virðingu

Kvika banki hefur gert tilboð í allt hlutafé Virðingar. Það gildir til klukkan 16 30. júní næstkomandi. Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem reynt er að renna fjármálafyrirtækjunum tveimur saman.

Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku og einn eigenda Virðingar.
Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku og einn eigenda Virðingar.
Auglýsing

Stjórn Kviku hefur gert kauptil­boð upp á 2.560 millj­ónir króna í allt hlutafé Virð­ing­ar. Ef af kaup­unum verður er stefnt að því að sam­eina félög­in. Til­boðið gerir ráð fyrir að greitt verði fyrir hlut­inn með reiðu­fé. Kauptil­boðið gildir til kl. 16:00 þann 30. júní næst­kom­andi. Ef sam­þykki að lág­marki 90 pró­sent hlut­hafa Virð­ingar fæst fyrir þann tíma er stefnt að boðun hlut­hafa­fundar í Kviku um miðjan júlí. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Kviku. 

Þar segir enn fremur að kaupin séu háð ákveðnum skil­yrð­um, þar á meðal sam­þykki hlut­hafa beggja félaga og sam­þykkis eft­ir­lits­stofn­ana.

Auglýsing

Stjórn Virð­ingar hefur mót­tekið kauptil­boðið og ákveðið að beina því til hlut­hafa félags­ins.

Skammt er síðan að Virð­ing und­ir­rit­aði samn­ing um kaup á ÖLDU sjóð­u­m. Verði til­boði Kviku til hlut­hafa Virð­ingar hf. tek­ið, er sá samn­ingur háður end­an­legu sam­þykki Kviku og hlut­hafa Öldu.

Hafa reynt áður

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem reynt er að sam­eina Virð­ingu og Kviku. Stjórnir Virð­ingar og Kviku und­ir­­­­­rit­uðu í nóv­­­­em­ber 2016 vilja­yf­­­­­ir­lýs­ingu um að und­ir­­­­­búa sam­runa félag­anna tveggja undir nafni Kviku. Í aðdrag­anda sam­ein­ingar átti að lækka eigið fé Kviku um 600 millj­­­­­ónir króna og greiða lækk­­­­­un­ina til hlut­hafa bank­ans. Hlut­hafar Kviku áttu eftir sam­runa að eiga 70 pró­­­­­sent hlut í sam­ein­uðu félagi og hlut­hafar Virð­ingar 30 pró­­­­­sent hlut. Við­ræð­­urnar gengu hins vegar erf­ið­­lega og í lok mars var til­­kynnt að stjórnir Kviku og Virð­ingar hefðu tekið sam­eig­in­­­lega ákvörðun um að slíta við­ræðum um sam­ein­ingu félag­anna. 

Kvika banki hagn­að­ist um tæpa tvo millj­­­­arða króna í fyrra eftir skatta og arð­­­­semi eig­in­fjár hjá bank­­­­anum var 34,7 pró­­­­sent. Eignir Kviku dróg­ust saman á árinu um þrjú pró­­­­sent og voru 59,5 millj­­­­arðar króna um síð­­­­­­­ustu ára­­­­mót. Eigið fé bank­ans var 7,3 millj­­­­arðar króna og jókst á árinu þrátt fyrir að hlutafé hafi verið lækkað um millj­­­­arð króna á fyrri hluta síð­­­­asta árs. Eig­in­fjár­­­­hlut­­­­fallið var 20,6 pró­­­­sent í lok árs 2016. 

Miklar vær­ingar hafa verið í kringum bank­ann að und­an­­förnu, sér­­stak­­lega eftir að Vátrygg­inga­­fé­lag Íslands (VÍS) keypti stóran hlut í honum í byrjun árs. VÍS er nú stærsti ein­staki Kviku með 24,89 pró­­sent hlut. Einka­fjár­­­fest­­ar, með Svan­hildi Nönnu Vig­­fús­dóttur í broddi fylk­ing­­ar, hafa náð tökum innan trygg­inga­­fé­lags­ins og hún er nú stjórn­­­ar­­for­­maður þess. Félag í eigu Svan­hildar Nönnu er einnig fjórði stærsti hlut­hafi Kviku með átta pró­­sent eign­­ar­hlut. 

Eig­andi Virð­ingar ráð­inn for­stjóri Kviku

Ármann Þor­­­valds­­­son, fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóri Kaup­­­þings Sin­­­ger & Fried­lander í Bret­landi og stjórn­­­andi hjá Virð­ingu, var ráð­inn for­­stjóri Kviku banka í byrjun maí. Hann tók við starf­inu af Sig­­urði Atla Jóns­­syni sem sagði starfi sínu lausu skömmu áður. Þá var Mar­inó Örn Tryggva­­son ráð­inn aðstoð­­ar­­for­­stjóri bank­ans.

Ármann hafði starfað hjá Virð­ingu í tvö ár, síð­­­­­ast sem fram­­­kvæmda­­­stjóri fyr­ir­tækja­ráð­gjaf­­­ar. Ármann er ásamt með­­fjár­­­festum sínum fimmti stærsti eig­andi Virð­ingar í gegnum félagið MBA Capi­­tal ehf., en það á 4,66 pró­­sent hlut í fyr­ir­tæk­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent