Andri Ólafsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri hjá VÍS.
Andri hefur starfað hjá 365 miðlum undanfarin 10 ár, nú síðast sem aðstoðarritstjóri fréttastofu 365, en greint var frá því í gær að hann væri hættur sem aðstoðarritstjóri.
Áður var hann fréttastjóri Fréttablaðsins og ritstjóri Íslands í dag. Hann er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.
Auglýsing
Hjá VÍS mun Andri stýra miðlun upplýsinga til fjölmiðla og markaðsaðila. „Hann mun einnig vinna náið með stjórnendum félagsins við mótun og innleiðingu samskiptastefnu og uppbyggingu fjárfestatengsla. Til viðbótar mun Andri bera ábyrgð á framfylgd samfélagsstefnu VÍS. Hann mun hefja störf 3. júlí nk.,“ að því er segir í tilkynningu frá VÍS.