Íslenska ríkið þarf að skila greinargerð innan viku

Gera má ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í haust í Landsréttarmálinu svokallaða.

Hæstiréttur
Auglýsing

Íslenska ríkið hefur tíma fram til mánu­dags­ins 3. júlí til að skila grein­ar­gerð í Lands­rétt­ar­mál­inu, en Kjartan Bjarni Björg­vins­son er dóm­ari í því. Hann var áður starfs­maður Umboðs­manns Alþingis og var meðal ann­ars í Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um sölu á hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um.

Eins og kunn­ugt er hafa tveir af þeim fjórum umsækj­end­um, sem voru á meðal 15 hæf­ustu umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt að mati sér­stakrar dóm­nefndar en voru ekki skip­aðir að lok­um, stefnt Sig­ríði Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra og íslenska rík­inu, þar sem fram­hjá þeim var gengið við skipan dóm­ara. 

Þetta eru Ást­ráður Har­alds­son hrl., sem var nú 14 á lista dóm­nefnd­ar­innar miðað við heild­ar­ein­kunn, og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hrl., sem var númer 12. Þeir voru báðir með svip­aða heild­ar­ein­kunn, Jóhannes Rúnar 5,6 og Ást­ráður 5,5. Eftst á lista dóm­nefnd­ar­innar voru Davíð Þór Björg­vins­son, með ein­kunn­ina 7,3, Sig­urður Tómas Magn­ús­son með ein­kunn­ina 6,7 og Ragn­heiður Harð­ar­dóttir með ein­kunn­ina 6,6. 

Auglýsing

Kjarninn birti þessi gögn, þegar málið var til meðferðar í þinginu, en í þeim sést hvernig dómnefndin flokkaði niður umsækjendur um starf dómara við Landsrétt.

Ein­kunn­ar­gjöf nefnd­ar­innar var birt á vef Kjarn­ans, þegar málið var til með­ferðar á Alþingi, og varð mik­ill póli­tískur titr­ingur vegna máls­ins, og var frá­vís­un­ar­til­laga meðal ann­ars felld með minnsta mögu­lega mun, 31-30, en tveir þing­menn, Brynjar Níels­son Sjálf­stæð­is­flokki og Svan­dís Svav­ars­dóttir Vinstri græn­um, tóku ekki þátt í að greiða atkvæði í mál­inu vegna tengsla við umsækj­endur um starf dóm­ara.

Með stefn­unni, sem birt hefur verið í heild sinni á vef Kjarn­ans, krefj­ast sækj­endur þess að ákvörð­unin í mál­inu verði ógild, og að skaða­bóta­réttur verði við­ur­kennd­ur.

Í stefn­unni segir meðal ann­ars að krafan um ógild­ingu byggi á því að Sig­ríður hafi við und­ir­­bún­­ing „hinnar umdeildu ákvörð­unar bæði brotið gegn máls­­með­­­ferð­­ar- og efn­is­­reglum stjórn­­­sýslu­rétt­­ar­ins.“ Meg­in­reglan um skipan í dóm­­ara­­starf bygg­i á fag­­legu hæfn­is­mati dóm­­nefndar og öll frá­­vik „frá því mati þurfi að byggja á sér­­­stökum rök­­stuðn­­ingi, brýnum og gagn­­sæjum ástæð­um, sem og vand­aðri með­­­ferð til und­ir­­bún­­ings ákvörð­un. Geð­þótti ráð­herra og sjón­­­ar­mið valin að hent­ug­­leikum í hvert sinn mega aldrei ráða. Tryggt þarf að vera að hæf­­asti umsækj­and­inn hljóti starfið og máls­­með­­­ferð þarf að vera til þess falllin að tryggja að svo verð­i,“ eins og orð­rétt segir í stefnu.

Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari. Mynd: Birgir.

Þau fimmtán sem nú eru dóm­arar við Lands­rétt eru Aðal­steinn E. Jón­as­son, Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ásmundur Helga­son, Davíð Þór Björg­vins­son, Her­vör Lilja Þor­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­ars­dótt­ir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, Sig­urður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þor­geir Ingi Njáls­son.

Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra.Þegar hefur verið sam­þykkt að málið fái flýti­með­ferð, en ólík­legt en sökum fría í júlí og ágúst má gera ráð fyrir að nið­ur­staða komi ekki í mál­inu fyrir í hér­aði fyrr en í haust. Lex lög­manns­stofa fer með málið fyrir hönd rík­is­ins, en hefð er fyrir því að rík­is­lög­maður reki mál sem þessi fyrir hönd rík­is­ins. Í þessu til­felli er rík­is­lög­maður þó van­hæfur sökum tengsla við kær­and­ann og þess að starfs­menn innan emb­ætt­is­ins voru í hópi umsækj­enda um stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara.

Reimar Pét­urs­son hrl., for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands, gagn­rýnir ákvörðun ráð­herra harð­lega í nýjasta tölu­blaði Lög­manna­blaðs­ins og telur hana tæp­ast í sam­ræmi við lög. Þá segir hann for­menn tveggja stjórn­ar­flokka hafi mis­skilið jafn­rétt­islög, þegar þeir tjáðu sig um mál­ið. Hann hvetur í grein sinni til þess að sem bestur friður verði skap­aður um mál­efni Land­rétt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent