Snærós Sindradóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra UngRÚV. Tilkynning þess efnis hefur verið send starfsfólki RÚV í innanhúspósti.
Snærós hefur störf í byrjun ágúst og leiðir uppbyggingu á þjónustu RÚV fyrir ungt fólk þvert á miðla, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Snærós er 25 ára og hefur starfað sem blaðamaður hjá Fréttablaðinu undanfarin ár. Snærós kemur inn með skýra sýn á nýjar leiðir í miðlun almannaþjónustu til ungs fólks og þekkir vel þær áskoranir sem hefðbundnir fjölmiðlar standa frammi fyrir í dag. Hún hlaut blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir viðtal ársins 2016 og starfaði þar áður með ungu fólki hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar,“ segir í tilkynningunni.
Meðal aðaláherslna í nýrri stefnu RÚV til 2021 er að „RÚV ætlar að bæta þjónustu við fólk á aldrinum 15-29 ára.“
Verkefni Snærósar er að opna og leiða samtalið við ungt fólk, rýna í þarfir hópsins og koma með tillögur að úrbótum á þjónustu RÚV við hópinn. Hún mun þróa tillögur að nýrri þjónustu og miðlun til að sinna þörfum þeirra, auk þess sem hún rýnir núverandi dagskrárframboð og tekur ákvarðanir um dagskrá í samstarfi við dagskrárstjóra. Snærós mun starfa náið með faghópi um þjónustu RÚV við ungt fólk sem verður myndaður með haustinu, segir í tilkynningunni.