Sparnaður hefur ekki verið meiri í hálfa öld

Þjóðhagslegur sparnaður á Íslandi mældist 29% árið 2016, en það er hæsta hlutfall síðan árið 1965. Þó eru vísbendingar um aukna skuldsetningu heimila.

Mikill þjóðhagslegur sparnaður er meðal annars vegna lágs skuldahlutfalls ríkisins.
Mikill þjóðhagslegur sparnaður er meðal annars vegna lágs skuldahlutfalls ríkisins.
Auglýsing

Þjóð­hags­legur sparn­aður var um 29% af vergri lands­fram­leiðslu árið 2016. Hann hefur ekki verið meiri í rúma hálfa öld, eða frá árinu 1965. Hins vegar eru teikn á lofti um að skuld­setn­ing heim­il­anna muni aukast í ár. Þetta kemur fram í mark­aðs­punktum grein­inga­deildar Arion banka.

Þjóð­hags­legur sparn­að­ur, eða hlut­fall inn­lendrar og erlendrar fjár­fest­ingar af lands­fram­leiðslu að við­bættum við­skipta­jöfn­uði, hefur vaxið nær stöðugt frá árinu 2010 og stendur nú í tæpum 30% af lands­fram­leiðslu. Horfa þarf aftur til árs­ins 1965 til að fá sömu töl­ur, en á síð­ustu þrjá­tíu árum hefur hann mest­megnis verið á bil­inu 10-20% af lands­fram­leiðslu.

Auglýsing
Sparnaðinn má rekja til auk­innar fjár­fest­ingar atvinnu­lífs­ins og batn­andi afkomu rík­is­sjóðs, en Kjarn­inn greindi frá því nýlega að skulda­hlut­fall hins opin­bera hafi ekki verið lægra frá hruni.

Ytri ástæð­ur, það er að segja lítil verð­bólga og við­skipta­af­gangur við útlönd,  hafa einnig verið hag­kvæmar fyrir þjóð­hags­legan sparn­að. Lítil verð­bólga, sem má meðal ann­ars útskýra með lágu heims­mark­aðs­verði á hrá­vörum, hefur stuðlað að lít­illi hækkun verð­tryggðra lána á Íslandi. Eins hefur við­skipta­af­gangur síð­ustu ára við útlönd leitt til tekjuinn­streym­is.

Fram­lag heim­ila til þjóð­hags­legs sparn­aðar er þó ekki mik­ið, en verð­bréfa­eign þeirra hefur auk­ist lítið und­an­farin miss­eri. Þó hefur sparn­aður þeirra auk­ist að ein­hverju leyti, en hann er aðal­lega til­kom­inn vegna minni skulda heim­il­anna, þar sem lán til þeirra hafa auk­ist lítið á síð­ustu árum.

Skjáskot úr greiningunni. Ef litið er lengst til hægri má sjá að skuldahlutfall heimilanna er byrjað að aukast aftur.Hins vegar má skynja breyt­ingu á skuld­setn­ingu heim­ila á síð­ustu mán­uð­um, en lán vegna íbúða­kaupa juk­ust tölu­vert á síð­ustu mán­uð­um. Ef litið er á 12 mán­aða þróun frá maí síð­ast­liðnum eru vís­bend­ingar þess efnis að skuldir heim­il­anna séu að byrja að aukast aft­ur, sér­stak­lega með auknum íbúð­ar­lánum frá líf­eyr­is­sjóð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent