Gjaldþrotabeiðnum fækkaði um 55%

Minna virðist um inn- og útgöngu á fyrirtækjamarkaði í vor miðað við í fyrra, en verulega hefur dregið úr gjaldþrotaskiptum og nýskráningum.

Nýskráningum fyrirtækja fækkaði mest í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum.
Nýskráningum fyrirtækja fækkaði mest í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum.
Auglýsing

Gjald­þrota­beiðnir á öðrum árs­fjórð­ungi 2017  voru um 55% færri en fyrir ári síð­an. Á sama tíma­bili fækk­aði nýskrán­ingum fyr­ir­tækja einnig um 11%. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu

Töl­urnar sýna að dregið hafi úr hrær­ingum á fyr­ir­tækja­mark­aði miðað við árið 2016. Nýskrán­ingar einka­hluta­fé­laga í apr­íl, maí  og júní voru 689, en til sam­an­burðar voru þær 771 á vor­mán­uðum í fyrra. Mest fækk­aði nýskrán­ingum í land­bún­aði, skóg­rækt og fisk­veið­ar, en næst mest á sviði upp­lýs­inga og fjar­skipta. 

Auglýsing

Sam­hliða færri nýskrán­ingum hefur gjald­þrota­beiðnum fækkað stór­lega á einu ári. Á öðrum árs­fjórð­ungi 2017 voru 157 fyr­ir­tæki tekin til gjald­þrota­skipta miðað við 352 í fyrra, en það jafn­gildir 55% fækk­un. Athygli vekur að sam­hliða færri nýskrán­ingum fækk­aði gjald­þrotum einnig mikið á meðal fyr­ir­tækja á sviði upp­lýs­inga og fjar­skipta, eða um 69%.Gjaldþrot fyrirtækja á vormánuðum 2013-2017. Heimild: Hagstofa

Tölur Hag­stofu benda til þess að atvinnu­líf sé að róast frá árinu á und­an, en árið 2016 var fimm ára met slegið í fjölda nýskráðra fyr­ir­tækja og þriggja ára met í fjölda gjald­þrota­skipta. Nýbirtar tölur fyrir 2017 eru meiri í takt við þróun fyrri ára heldur en töl­urnar frá því í fyrra, eins og sést á mynd hér að ofan.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent