Hagnaður Össurar dregst saman um tvær milljónir dala

Össur birti fjórðungsuppgjör sitt í gær, en samkvæmt því hefur framlegð og hagnaður fyrirtækisins dregist nokkuð saman.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Auglýsing

Sam­kvæmt nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri Öss­urar var hagn­aður þess á öðrum árs­fjórð­ungi um tveimur millj­ónum minna en fyrir sama tíma­bil í fyrra. Fyr­ir­tækið lækkar einnig vænt­ingar sínar til EBIT­DA-fram­legðar vegna óhag­stæðra geng­is­sveiflna.

Í takti við vænt­ingar

Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins kemur fram að sala fyr­ir­tæk­is­ins hafi auk­ist um 6%, en færri við­skipta­dagar vegna seinna páska í ár höfðu nei­kvæð áhrif á söl­una.

Fram­legð ­fyr­ir­tæk­is­ins ­lækk­aði einnig lít­il­lega, í ár nam hún 89 millj­ónum dölum og 62% af sölu miðað við 89 millj­ónir og 64% af sölu fyrir sama tíma­bil í fyrra. Sömu sögu er að segja um hagn­að, en hann nam 13 millj­ónum og 9% af sölu, miðað við 15 millj­ónum og 10% af sölu á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra. Minni fram­legð virð­ist aðal­lega vera vegna tveggja þátta: Óhag­stæðra geng­is­sveiflna og auk­inn fram­leiðslu­kostnað í mörgum verk­smiðjum Öss­ur­ar. 

Auglýsing

Að sögn Jóns Sig­urðs­son­ar, for­stjóra Öss­ur­ar, eru nið­ur­stöð­urnar í takti við vænt­ingar fyr­ir­tæk­is­ins. „Við sjáum heil­brigðan innri sölu­vöxt það sem af er árs 2017, en færri sölu­dagar á öðrum árs­fjórð­ungi hefur nei­kvæð áhrif á vöxt á öðrum árs­fjórð­ung­i,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Sterkur dollar veikir fram­legð

Geng­is­sveiflur höfðu mikil áhrif á afkomu Öss­ur­ar, en sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu er það sér­stak­lega við­kvæmt gagn­vart sveiflum í gengi Banda­ríkja­dals gegn öðrum stórum gjald­miðl­um.

Sveiflur í gengi íslensku krón­unnar hafi einnig tölu­verð áhrif, en þar sem fyr­ir­tækið geri upp í dölum og stór hluti starf­semi þeirra fer fram í Evr­ópu var það styrk­ing Banda­ríkja­dals gagn­vart evru, pundi og sænsku krón­unni sem hafði mest áhrif.

Vegna umræddrar geng­is­styrk­ingar Banda­ríkja­dals ákvað fyr­ir­tækið að lækka vænt­ingar sínar til EBIT­DA-fram­legðar fyrir 2017 úr 19-20% niður í 18-19%. Hins vegar hald­ast allar aðrar spár fyr­ir­tæk­is­ins óbreytt­ar. 

Talað um múr­inn

Minnst var á hug­myndir sitj­andi Banda­ríkja­for­seta um toll­múr milli Banda­ríkj­anna og Mexíkó í kynn­ingu upp­gjörs­ins, en hluti fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins fer fram í Mexíkó. Hins vegar metur Össur svo að fram­leiddar vörur í Mexíkó sé of lít­ill hluti af heild­ar­sölu fyr­ir­tæk­is­ins í Banda­ríkj­unum til þess að hafa áhrif á afkomu fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent