Bandaríkin refsa Maduro fyrir valdagræðgi

Líklegt er að bandarísk stjórnvöld muni herða viðskiptaþvinganir við Venesúela, hætti Nicolás Maduro ekki við fyrirhuguð áform sín. Slíkt getur haft slæmar afleiðingar fyrir bæði löndin.

Nicolás Maduro, forseti Venesúela, fyrr í vikunni.
Nicolás Maduro, forseti Venesúela, fyrr í vikunni.
Auglýsing

Svo virð­ist sem banda­rísk stjórn­völd ætli sér að setja upp frek­ari við­skipta­þving­anir gegn Venes­ú­ela ef Nicolás Maduro, for­seti lands­ins, reynir að breyta stjórn­ar­skrá lands­ins. Við­skipta­þving­an­irnar gætu haft nei­kvæð áhrif, ekki ein­ungis á lamaðan efna­hag Venes­ú­ela, heldur einnig Banda­rík­in. Þetta kom fram í frétt á vef New York Times í gær.

Á mið­viku­dag­inn var greint frá því að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna hafi sett á við­skipta­bann hjá 13 núver­andi og fyrr­ver­andi venes­ú­elskum  rík­is­stjórn­ar­með­limum vegna fyr­ir­hug­aðra ein­ræð­istil­burða for­set­ans þar í landi, Nicolás Maduro. Maduro hyggst skipa í stjórn­laga­ráð næsta sunnu­dag, en Banda­ríkja­stjórn telur ráðið muni koma stjórn­ar­skrár­breyt­ingum í gegn sem gefa Maduro auknar vald­heim­ild­ir.

Ekki er talið að umrætt við­skipta­bann muni hafa efna­hags­leg áhrif, en sam­kvæmt Mnuchin verða auknar við­skipta­þving­anir við Venes­ú­ela mögu­lega settar á hætti Maduro ekki við skipan ráðs­ins.

Auglýsing

Mikið í húfi

Mikil verð­mæti eru í húfi ef af þving­un­unum verður í báðum lönd­un­um. Umfangs­mikil olíu­við­skipti eru milli land­anna, en olía Venes­ú­ela er gróf og lítið unnin og Banda­ríkin er eitt fárra ríkja sem hefur nógu góðar olíu­hreinsi­stöðvar fyrir hana. Verði af við­skipta­banni milli land­anna myndi því rík­is­rekni olíu­fram­leið­andi Venes­ú­ela, PDVSA, missa sinn stærsta við­skipta­vin.

Sömu­leiðis myndu þving­anir hafa nei­kvæð áhrif á utan­rík­is­við­skipti í Banda­ríkj­un­um, en venes­ú­elsk olía nemur einum tíunda af heild­ar­inn­flutn­ingi þar í landi.

Enn frem­ur, ef Banda­ríkja­menn hætta að kaupa olíu frá Venes­ú­ela mætti búast við hækk­andi heims­mark­aðs­verði á olíu. Hækk­andi olíu­verð myndi hafa jákvæð áhrif á olíu­fram­leiðslu­löndin Íran og Rúss­land og drægi þannig úr nei­kvæðum áhrifum við­skipta­þving­ana Banda­ríkj­anna við þau.

Sam­kvæmt frétt NYT myndu nei­kvæð efna­hags­á­hrif í Venes­ú­ela einnig smit­ast til Banda­ríkj­anna að ein­hverju leyti, en David L. Gold­wyn, sendi­herra orku­mála í fyrri rík­is­stjórn Obama, sagði í sam­tali við NYT að harðar við­skipta­þving­anir gætu leitt til flótta­manna­bylgju til Banda­ríkj­anna.

Ógn­ar­öld í Venes­ú­ela

Ógn­ar­öld ríkir í Venes­ú­ela núna, en tugir þús­undir íbúa lands­ins hafa flúið til nágranna­landa á meðan hag­kerfi lands­ins eru rjúk­andi rústir og ofbeldi og hungur fær­ist í auk­ana. Kreppa hefur ríkt í land­inu vegna lágs hrá­vöru­verðs und­an­far­inna ára, en stjórn­völd þar í landi hafa einnig sætt mik­illi gagn­rýni fyrir seðla­prentun og yfir­tökur rík­is­ins á ýmsum fyr­ir­tækj­um.

Útflutn­ingur lands­ins hefur beðið hnekki vegna ástands­ins á síð­ustu árum. Til að mynda hefur inn­flutn­ingur á vörum frá Venes­ú­ela til Íslands snar­lækk­að, en sam­tals hefur verið flutt inn að and­virði 400 millj­óna króna í fyrra, miðað við rúma 6 millj­arða árið 2015.

Lík­legt er að Maduro muni skipa í stjórn­laga­ráð þvert á við­var­anir Banda­ríkja­manna, ef marka má nýleg orð hans: „(Ef Trump) hefur vogað sér að segja nei við skipun stjórn­laga­ráðs, þá svörum við: „já, já, já – stjórn­laga­ráðið mun koma sam­an.“   

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent