Kalifornía stendur við loftslagsmarkmiðin þrátt fyrir stefnu alríkisstjórnarinnar

Stærsta einstaka ríki Bandaríkjanna vill standa við markmið Parísarsamkomulagið.

Arnold Schwarzenegger er fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu sem samþykkti upphaflegu loftslagslögin árið 2006. Jerry Brown, núverandi ríkisstjóri, framlengdi þau í vikunni.
Arnold Schwarzenegger er fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu sem samþykkti upphaflegu loftslagslögin árið 2006. Jerry Brown, núverandi ríkisstjóri, framlengdi þau í vikunni.
Auglýsing

Jerry Brown, rík­is­stjóri í banda­ríska rík­inu Kali­forn­íu, hefur fram­lengt lofts­lags­á­ætlun rík­is­ins um tíu ár. Í Kali­forníu verður þess vegna sett tak­mark á magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem blása má út í and­rúms­loftið og mark­aði með los­un­ar­heim­ildir haldið við.

Alrík­is­stjórn Banda­ríkj­anna undir for­sæti Don­alds Trump hefur sagt sig frá Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um aðgerðir í lofts­lags­mál­um. Það til­kynnti Trump í byrjun júní. Hann hefur síðan keppst við að afnema lofts­lags­reglu­verk for­vera síns í emb­ætti, Baracks Obama.

Mark­aður Kali­forníu með los­un­ar­heim­ildir í Kali­forníu er eini slíki mark­að­ur­inn í öllum Banda­ríkj­un­um. Til hans var stofnað árið 2006 í rík­is­stjóra­tíð leik­ar­ans og Tor­ím­and­ans Arnolds Schwarzenegger.

Auglýsing

Schwarzenegger var við­staddur þegar Brown, rík­is­stjóri úr röðum Demókra­ta­flokks­ins, fram­lengdi lofts­lags­lög­gjöf­ina í vik­unni. Hann benti á að hag­kerfi Kali­forníu hefði vaxið hraðar en hag­kerfi Banda­ríkj­anna allra síðan lofts­lags­lög­gjöfin var sam­þykkt árið 2006. „Kannski ættu íhaldsamir repúblikanar að hætta að ljúga að fólk­inu. Hættið að ljúga að fólk­inu! Hættið því!“ sagði Schwarzenegger í ávarpi sínu.

Lofts­lags­reglu­verk Kali­forníu er talið vera til marks um að hægt er að beita lögum og reglum til þess að gera los­un­ar­heim­ildir að mark­aðs­vöru. Hag­kerfi Kali­forn­íu­ríkis eins og sér er sjötta stærsta hag­kerfi heims á eftir hag­kerfum Banda­ríkj­anna, Kína, Jap­an, Þýska­lands og Bret­lands.

Ísland á aðild að sams­konar los­un­ar­heim­ilda­mark­aði og í Kali­forn­íu; Í gegnum EES-­samn­ing­inn er Ísland aðili að við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá iðn­aði, flug­sam­göngum og flutn­inga á hafi.

Kali­fornía finnur fyrir lofts­lags­breyt­ingum

Gróðureldar í Kaliforníu hafa verið tíðir á undanförnum árum.Kali­forn­íu­ríki á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna er eitt þeirra ríkja í Norð­ur­-Am­er­íku sem fundið hefur hvað mest fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Miklir þurrkar hafa verið í Kali­forníu á und­an­förnum árum vegna breyttra veð­ur­mynstra. Það hefur gert hætt­una á gróð­ur­eldum mun meiri og eigna­tjón vegna þeirra eru nú mun tíð­ari.

Breytt veður hefur einnig orðið til þess að vatns­forði rík­is­ins er orð­inn rýr og óstöð­ug­ur. Úrkoma er nú nær öll í formi rign­ingar sem hefur áhrif á straum­vatn og grunn­vatns­stöðu yfir allt árið.

Í Yos­emite-­þjóð­garð­inum í Sierra Nevada-fjall­garð­inum hefur snjó­koma minnkað mikið á und­an­förnum árum. Áin sem rennur í gegnum þjóð­garð­inn fræga hættir þess vegna orðið að renna um mitt sum­ar, svo dæmi sé tek­ið.

Stjórn­völd í Kali­forn­íu­ríki og borgum rík­is­ins hafa þurft að grípa til þess ráðs að skammta vatn til borg­ara, vegna þessa.

Til marks um hversu óreglu­legt veðrið er orðið í Kali­forníu var síð­asti vetur blaut­asti vetur í rík­inu síðan mæl­ingar hófust.

Yosemite-þjóðgarðurinn er vinsæll ferðamannastaður í Bandaríkjunum. (Mynd: Birgir Þór)

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent