Samkomulag hefur náðst um sameiningu Iceland Travel ehf., sem er að fullu í eigu Icelandair Group, og Allrahanda GL ehf. sem er leyfishafi Gray Line Worldwide á Íslandi og er í eigu stofnenda fyrirtækisins og Akurs fjárfestinga slhf. Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallar Íslands, en Icelandair er skráð á markað. Gert er ráð fyrir að heildarvelta sameinaðs félags á árinu 2017 verði um 18 milljarðar króna.
Í tilkynningunni segir að eftir sameiningu muni Icelandair Group eiga 70 prósent hlutafjár í sameinuðu félagi og eigendur Allrahanda GL ehf. muni eiga 30 prósent hlut. „Markmið sameiningarinnar er að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini og jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstri. Yfirstjórn og rekstur félaganna verða sameinuð en þjónusta áfram veitt undir sömu vörumerkjum og áður. Sameiningin er gerð með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannana og samþykki eftirlitsaðila[...]Fyrirtækin hafa átt gott samstarf um árabil en hafa sérhæft sig með mismunandi hætti innan ferðaþjónustunnar.“
Þar er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Icelandair Group og stjórnarformanni Iceland Travel, að sameiningin sé jákvætt skref sem styrki reksturinn til lengri tíma litið. „Bæði fyrirtæki eru í fremstu röð í íslenskri ferðaþjónustu og sameiningin gerir þeim kleift að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu. Samkeppnin á markaðnum er mikil og Ísland og íslensk fyrirtæki eiga í harðri alþjóðlegri samkeppni. Það er því afar mikilvægt að rekstrareiningar séu hagkvæmar og að fyrirtækin leiti allra leiða til að straumlínulaga rekstur sinn. Sameinað félag nær sem heild yfir stærri hluta af virðiskeðjunni í ferðaþjónustu en félögin sem einingar gerðu áður. Því fylgja áhugaverð tækifæri til áframhaldandi þróunar, enda víða spennandi hlutir að gerast í íslenskri ferðaþjónustu.“