Iceland Travel og Allrahanda sameinuð

Icelandair mun eiga 70 prósent í sameinuðu fyrirtæki en hluthafar Allrahanda, sem er leyfishafi Gray Line Worldwide á Íslandi, 30 prósent.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Auglýsing

Sam­komu­lag hefur náðst um sam­ein­ingu Iceland Tra­vel ehf., sem er að fullu í eigu Icelandair Group, og Allra­handa GL ehf. sem er leyf­is­hafi Gray Line World­wide á Íslandi og er í eigu stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og Akurs fjár­fest­inga slhf. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands, en Icelandair er skráð á mark­að. Gert er ráð fyrir að heild­ar­velta sam­ein­aðs félags á árinu 2017 verði um 18 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ing­unni segir að eftir sam­ein­ingu muni Icelandair Group eiga 70 pró­sent hluta­fjár í sam­ein­uðu félagi og eig­endur Allra­handa GL ehf. muni eiga 30 pró­sent hlut. „Mark­mið sam­ein­ing­ar­innar er að bæta enn frekar þjón­ustu við við­skipta­vini og jafn­framt að ná fram hag­ræð­ingu í rekstri. Yfir­stjórn og rekstur félag­anna verða sam­einuð en þjón­usta áfram veitt undir sömu vöru­merkjum og áður. Sam­ein­ingin er gerð með fyr­ir­vara um nið­ur­stöður áreið­an­leikakann­ana og sam­þykki eft­ir­lits­að­ila[...]­Fyr­ir­tækin hafa átt gott sam­starf um ára­bil en hafa sér­hæft sig með mis­mun­andi hætti innan ferða­þjón­ust­unn­ar.“

Auglýsing

Þar er haft eftir Björgólfi Jóhanns­syni, for­stjóra Icelandair Group og stjórn­ar­for­manni Iceland Tra­vel, að sam­ein­ingin sé jákvætt skref sem styrki rekst­ur­inn til lengri tíma lit­ið. „Bæði fyr­ir­tæki eru í fremstu röð í íslenskri ferða­þjón­ustu og sam­ein­ingin gerir þeim kleift að veita við­skipta­vinum enn betri þjón­ustu. Sam­keppnin á mark­aðnum er mikil og Ísland og íslensk fyr­ir­tæki eiga í harðri alþjóð­legri sam­keppni. Það er því afar mik­il­vægt að rekstr­ar­ein­ingar séu hag­kvæmar og að fyr­ir­tækin leiti allra leiða til að straum­línu­laga rekstur sinn. Sam­einað félag nær sem heild yfir stærri hluta af virð­is­keðj­unni í ferða­þjón­ustu en félögin sem ein­ingar gerðu áður. Því fylgja áhuga­verð tæki­færi til áfram­hald­andi þró­un­ar, enda víða spenn­andi hlutir að ger­ast í íslenskri ferða­þjón­ust­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent