Skýrsla nefndar sem á að gera tillögur að lagabreytingum eða nauðsynlegum aðgerðum til að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla er enn ekki tilbúin. Formaður nefndarinnar, Björgvin Guðmundsson, segir við Fréttablaðið að lítið hafi gerst í vinnu nefndarinnar í sumar og að sumarfrí hafi sett strik í reikninginn. Nú sé vinna að fara aftur í gang við að klára það sem utan stendur.
Megindrög skýrslunnar séu tilbúin og drög að tillögum liggja fyrir en þau er enn sem komið er ósamþykkt innan nefndarinnar. Björgvin segir engar deilur hafa verið innan nefndarinnar en komast þurfi að samkomulagi um hverjar tillögurnar eigi að vera og birta síðan skýrsluna eftir að hún hefur verið kynnt fyrir mennta- og menningarmálaráðherra.
Illugi Gunnarsson, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra, skipaði nefndina í árslok í fyrra. Kjarninn greindi frá því um miðjan júní að unnið væri að frágangi skýrslunnar, samkvæmt svörum frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Stefnt yrði að því að niðurstöður úr vinnu nefndarinnar myndu verða kynntar fyrir sumarleyfi, eða fyrir júnílok. Sú dagsetning stóðst ekki.
Nefndin hefur ekki haft neinn starfsmann og þar sem nefndarmenn eru allir í öðrum störfum, og flestir að sinna nefndarstarfinu utan síns vinnutíma, þá greindi Björgvin frá því við Kjarnann í júní að hann hefði óskað eftir aðstoð frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu við upplýsingaöflun, aðstoð við úrvinnslu gagna, undirbúning og frágang. „Vegna anna í ráðuneyti var erfitt að koma því við en ég fór þá fram á að geta sótt aðstoð til KOM og undirverktaka þegar á þyrfti. Það hef ég gert.“ Björgvin staðfesti einnig að KOM hafi fengið Gísla Frey Valdórsson, ritstjóra Þjóðmála og fyrrverandi aðstoðarmann Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þáverandi innanríkisráðherra, til að vinna afmarkað verkefni fyrir nefndina.
Í skipanabréfi nefndarinnar kom fram að sérstök þóknananefnd ákvarði greiðslur fyrir þá vinnu sem unnin er fyrir nefndina. Því liggur ekki fyrir hvað greitt verður fyrir aðkeypta þjónustu vegna upplýsingaöflunar, aðstoð við úrvinnslu gagna, undirbúning og frágang.
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, var gestur sjónvarpsþáttarins Kjarnans um miðjan maí og ræddi þar fjölmiðlaumhverfið á Íslandi. Þar sagðist hann hafa áhyggjur af stöðu þess. „Við erum í uppsveiflu og þetta ætti að geta gengið þokkalega vel. Ég hef verulegar áhyggjur af því að þegar niðursveiflan kemur þá þrengi enn meira að þessu starfi,“ sagði hann. Kristján Þór sagðist telja það skynsamlegt að skoða rekstrarumhverfið út frá skattalega þættinum. „Skoða skattkerfið og ívilnanir þar til prentmiðla, til vefmiðla þess vegna, og svo framvegis.“
Í þættinum sagði Kristján að hann vænti þess að nefnd um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi, sem forveri hans Illugi Gunnarsson skipaði, myndi skila af sér fyrir lok maímánaðar. Þau skil hafa síðan tafist.