Íslenskir lífeyrissjóðir settu 433 milljónir í United Silicon í apríl

Lífeyrissjóðir og Arion banki tóku þátt í hlutafjárhækkun í apríl. Félagið komið í greiðslustöðvun rúmum fjórum mánuðum síðar. Leynd ríkir um eignarhaldið.

Úr kísilverinu. Mynd: United Silicon
Auglýsing

Festa líf­eyr­is­­sjóður og Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­ur­­inn lögðu sam­tals 433 millj­­ón­ir ís­­lenskra króna til í hluta­fjár­aukn­ingu United Sil­icon í apr­íl. Frá þessu er greint á mbl.is. United Sil­icon óskaði fyrr í vik­unni eftir greiðslu­stöðvun og und­ir­býr sig nú fyrir nauða­samn­ings­gerð við kröfu­hafa sína.

Hluta­féð var aukið um 752 millj­ónir króna á nafn­virði í apr­íl, sam­kvæmt skjölum sem send voru til fyr­ir­tækja­skrá­ar. Arion banki tók einnig þátt í aukn­ing­unni og á í dag 16 pró­sent hlut í United Sil­icon. Það kom fram í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í gær. Arion banki er líka aðal lán­ar­drott­inn United Sil­icon. Arion rekur auk þess Frjálsa líf­eyr­is­sjóð­inn og hann er til húsa í höf­uð­stöðvum bank­ans í Borg­ar­túni.

Arion banki mun birta hálfs­árs­upp­gjör sitt í næstu viku og þar verður fjallað um stöðu United Sil­icon og áhrif hennar á bank­ann. Við­búið er að Arion þurfi að færa var­úð­ar­nið­ur­færslu vegna vand­ræða fyr­ir­tæk­is­ins. Kjarn­inn leit­aði upp­lýs­inga hjá United Sil­icon í gær um hvernig eig­enda­hóp­ur­inn væri sam­an­settur í dag, eftir áður­nefnda hluta­fjár­aukn­ingu í byrjun apr­íl. Sá hópur mun óhjá­kvæmi­lega verða fyrir miklum áhrifum vegna stöð­unnar sem er uppi. Fyrir liggur að rekst­ur­inn er að mestu í eigu félags sem er skráð í Hollandi en engar upp­lýs­ingar um hlut­hafa­skrá er að finna í íslenskri fyr­ir­tækja­skrá. Krist­leifur Andr­és­son, tals­maður United Sil­icon, sagði að upp­lýs­ingar um eign­ar­haldið verði ekki gefnar upp að svo stöddu.

Starf­andi í sjö mán­uði

Greint var frá því í vik­unni að félagið sem á verk­smiðju United Sil­icon, einnig þekkt sem Sam­einað Sil­icon, í Helgu­vík hafi fengið greiðslu­stöðvun og ætli í nauða­samn­ings­gerð við stærstu kröfu­hafa sína. Verk­smiðjan hóf starf­semi í nóv­em­ber í fyrra og hefur því ein­ungis verið starf­andi í rúma sjö mán­uði. Ljóst er að áhrif greiðslu­stöðv­un­ar­innar hér­lendis – og nauða­samn­ing­anna ef þeir nást – verða víð­tæk.

Auglýsing
Arion banki fjár­magn­aði bygg­ingu verk­smiðj­unn­ar, Lands­virkjun selur henni raf­magn og bæði Arion, íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru á meðal eig­enda, Reykja­nes­bær hefur umtals­verðar tekjur af rekstri hennar og Íslenskir Aðal­verk­takar (ÍAV) eiga kröfu upp á millj­arð króna á United Sil­icon. Þegar hefur verið greint frá því að Reykja­nes­bær hafi ekki fengið greitt á annað hund­rað millj­ónir sem United Sil­icon skuldar sveit­ar­fé­lag­inu í gatna­gerð­ar­gjöld.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent