Erlendur sjóður keypti fyrir hálfan milljarð í Högum

Bandarískur fjárfestingarsjóður sem hefur fjárfest fyrir á fjórða milljarð króna í nokkrum íslenskum félögum keypti stóran hlut í Högum í vikunni. Hlutabréfaverð Haga hefur lækkað um tugi prósenta undanfarna mánuði.

Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins, er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni. Alls reka Hagar 50 verslanir innan fimm smásölufyrirtækja og fjögurra vöruhúsa.
Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins, er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni. Alls reka Hagar 50 verslanir innan fimm smásölufyrirtækja og fjögurra vöruhúsa.
Auglýsing

Fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn The Well­ington Trust Company, sem er á vegum banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Well­ington Mana­gement, keypti hluta­bréf í Högum fyrir rúm­lega hálfan millj­arð króna í vik­unni. Sjóð­ur­inn átti engin hluta­bréf í Högum fyrir við­skiptin er á nú 1,6 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu og er á meðal 20 stærstu hlut­hafa þess.

Tölu­verð við­skipti voru með hluta­bréf í Högum í byrjun viku, sem leiddu til þess að hluta­bréfa­verð í félag­inu lækk­aði. Hluta­bréfa­verð í Högum hefur lækkað um 35 pró­sent frá 15. maí. Síðan þá hefur félagið tví­vegis sent frá sér aðkomu­við­vörun vegna þess að bráða­birgða­upp­gjör sýndu sölu­sam­drátt í magni og krón­um. Ástæðan er opnun versl­unar Costco þann 23. maí, en sú verslun hefur tekið til sín umtals­verð við­skipti á dag­vöru­mark­aði. Mark­aðsvirði Haga hefur dreg­ist saman um 24 millj­arða króna frá því að Costco opn­aði.

Eiga stóran hlut í nokkrum íslenskum félögum

The Well­ington Trust Company er í sjóður í stýr­ingu Well­ington Mana­gement.  Það er eitt stærsta eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki heims með eignir í stýr­ingu upp á sam­tals um þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala. Sjóð­ur­inn keypti fyrir 525 millj­ónir króna í Högum og var langstærsti kaup­andi bréfa í félag­inu í lið­inni viku. Sjóð­ur­inn hefur verið umsvifa­mik­ill á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði það sem af er ári og á stóra hluti í fjórum öðrum skráðum félög­um.

Auglýsing

Í lok febr­úar keypti sjóð­ur­inn stóran hlut í N1 og á í dag 4,5 pró­sent hlut í félag­inu sem er tæp­lega 1,3 millj­arða króna virði miðað við gengi bréfa í N1 í dag.

Í maí­mán­uði keypti The Well­ington Trust Company hlut í Nýherja. Alls á sjóð­ur­inn nú 1,9 pró­sent hlut í félag­inu sem er um 270 millj­óna króna virði.

Þá á sjóð­ur­inn einnig hluti í Sím­anum (1,8 pró­sent hlut sem er met­inn á 740 millj­ónir króna) og í Eim­skip (1,3 pró­sent sem er um 800 millj­óna króna virð­i). Sam­tal er mark­aðsvirði þeirra bréfa sem The Well­ington Trust Company er á meðal 20 stærstu hlut­hafa í um 3,6 millj­arðar króna.

Kvika keypti í Icelandair

Það voru fleiri stór við­skipti í vik­unni. Icelandair, sem hefur hríð­fallið í verði á und­an­förnum mán­uð­um, rétti aðeins úr kútnum í vik­unni. Það gerð­ist sér­stak­lega eftir að tveir lyk­il­stjórn­end­ur, Björgólfur Jóhanns­­son, for­­stjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Boga­­son, fram­­kvæmda­­stjóri fjár­­­mála hjá félag­inu, keyptu bréf í því föstu­dag­inn 11. ágúst. Nú er gengi bréfa í félag­inu um 16 krónur á hlut en var 38,9 krónur á hlut í apríl 2016. Frá þeim tíma hefur mark­aðsvirði Icelandair dreg­ist saman um 60 pró­sent. Mark­aðsvirðið er nú um 78 millj­arðar króna en var 189 millj­arðar króna í apríl í fyrra.

Kvika banki keypti í Icelandair fyrir 863 millj­ónir króna í vik­unni og á nú 1,1 pró­sent í félag­inu. Áður átti bank­inn ekk­ert. Arion banki minnk­aði stöðu sína í félag­inu og seldi bréf fyrir 224 millj­ónir króna.

Þá keypti VÍS, sem er skráð á mark­að, hluta­bréf í Marel fyrir 2,7 millj­arða króna og Marel keypti eigin bréf fyrir 893 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent