Eiginfjárstaða Atvinnuleysistryggingasjóðs stefnir í að verða jákvæð um 25 milljarða króna á þessu ári. Alþýðusamband Íslands, ASÍ, segir sjóðinn þess vegna vel í stakk búinn til þess að standa undir hækkun atvinnuleysisbóta. Atvinnuleysisbætur sem hlutfall af lágmarkslaunum er nú 78 prósent og hefur hlutfallið aldrei verið lægra.
„Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun stjórnvalda að láta atvinnuleysisbætur ekki fylgja þróun lægstu launa og krefst þess að atvinnuleysisbætur verði hækkaðar til samræmis við lægstu laun,“ segir í frétt á vef ASÍ.
ASÍ samdi um þrepaskiptar hækkanir á lægstu launum í landinu í kjarasamningum árið 2015. Í árslok 2018 eiga lágmarkslaun þess vegna að vera 300.000 krónur á mánuði. ASÍ segist hafa farið fram á að bætur almannatrygginga og atvinnuleysisbætur myndu haldast í hendur við lágmarkslaun, en ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafnaði því. Alþingi ákvað síðar að tryggja að hámarksbætur almannatrygginga vegna ársins 2017 myndu fylgja þróun lágmarkslauna. Slík hækkun hefur ekki verið ákveðin um atvinnuleysisbætur.
„Í lögum er skýrt kveðið á um að atvinnuleysisbætur eigi að fylgja þróun kaupgjalds í landinu,“ segir í frétt ASÍ. „Ráðherra vinnumarkaðsmála og ríkisstjórnin fer því á svig við lög og heggur þar sem síst skyldi í árferði sem hefur verið kallað lengsta góðærisskeið í manna minnum.“
„Miðstjórnin áréttar jafnframt að Alþýðusambandið hefur verið þeirrar skoðunar að aðlaga beri tryggingargjaldið að fjárhagsstöðu vinnumarkaðstengdu sjóðanna, þ.e. atvinnuleysistryggingasjóðs, fæðingarorlofssjóðs og ábyrgðarsjóðs launa, að því gefnu að áður en til breytinga á iðgjaldi atvinnulífsins kemur verði að treysta réttindi sjóðfélaganna. Því mun fyrrgreind lækkun bótaréttar m.v. lægstu laun eða áform stjórnvalda um styttingu bótatímabilsins úr 30 mánuðum í 24 ekki verða grunnur að neinni sátt.“