Svandís: Búið að ákveða að ekkert komi út úr starfi veiðigjaldanefndar

Fulltrúi Vinstri grænna í nefnd um gjaldtöku í sjávarútvegi segir starfsemi nefndarinnar vera sjónarspil. Vinna hennar snúist um að tryggja að sökin á breytingarleysi liggi annars staðar en hjá ríkisstjórninni.

svandís svavarsdóttir
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, full­trúi Vinstri grænna í nefnd um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, segir að svo virð­ist sem starf­semi nefnd­ar­innar sé sjón­ar­spil. Fyrir fram sé búið að ákveða að ekk­ert komi út úr henni. Vinnan snú­ist í raun „um að tryggja að sökin liggi ann­­ars staðar en hjá rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­unum sjálfum sem ekki hafa leitt þessi mál til lykta með nokkru móti frekar en önnur stór mál á borði rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar.“ Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Svan­dís skrifar á Kjarn­ann í dag.

Svan­dís segir að Hanna Katrín Frið­riks­son, full­trúi Við­reisnar í nefnd­inni, hafi lagt fram til­lögu í nefnd­inni þar sem ekk­ert hafi verið fjallað um þjóð­ar­eign á fisk­veiði­auð­lind­inni heldur byggt á þeirri nálgun að um verði að ræða samn­inga milli útgerð­­ar­innar og rík­­is­ins á einka­rétt­­ar­­legum grunni. Sjálf seg­ist Svan­dís telja að ekki verði undan því vik­ist í vinn­unni að skera úr um skiln­ing á eign­ar­hald­inu og að festa þurfi auð­linda­á­kvæði í sessi í stjórn­ar­skrá.

Nefndin á að skila til­­­lögum sínum til ráð­herra í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. des­em­ber á þessu ári.

Bók­uðu harða gagn­rýni á Þor­stein

Þor­steinn Páls­son, for­maður nefnd­ar­innar og áhrifa­maður innan Við­reisn­ar, skrif­aði grein í júní sem birt var á Kjarn­an­um. Þar sagði Þor­­steinn m.a. að mesta hættan sem sé til staðar í rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­­­sam­­­starfi Við­reisnar og Bjartrar fram­­­tíðar við Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­inn sé að sá síð­­­ast­­­nefndi nái saman með Fram­­­sókn­­­ar­­­flokknum og Vinstri grænum í því breiða sam­tali um nokkur höf­uð­­­mál íslenskra stjórn­­­­­mála sem fram undan sé. Bæði Fram­­­sókn og Vinstri græn hafi „staðið jafn fast eða jafn­­­vel fastar gegn kerf­is­breyt­ingum en Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­­­ur­inn“. Flokk­­­arnir kom­ist ekki hjá því að svara hvert hugur þeirra stefnir í þeim efnum á næstu mán­uðum eða mis­­s­er­­­um. 

Auglýsing
Greinarskrif Þor­steins urðu til þess að Svandís, Páll Jóhann Páls­­son, fyrr­ver­andi þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks, og Logi Ein­­ar­s­­son, for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, bók­uðu harða gagn­rýni á Þor­­stein á næsta fundi nefnd­ar­inn­ar. Í bók­un­inni var vitnað í grein Þor­steins og  þar var tekið fram að vand­­séð sé að for­­maður nefnd­­ar­innar sé að vinna að því marki að ná víð­tækri sátt um gjald­­töku í sjá­v­­­ar­út­­­vegi, sé miðað við umrædd skrif.

Segir nefnd­ina ekki eiga að skila neinu

Svan­dís fjallar um grein Þor­steins í skrifum sínum í dag og sagði það vera nýlundu að „meiri­hlut­inn kenni minn­i­hlut­­anum um það þegar meiri­hlut­inn getur ekki komið sér saman um stór mál. Ekki varð hjá því kom­ist að svara þess­­ari grein Þor­­steins enda var engu lík­­­ara en að for­­mað­­ur­inn væri að reyna að koma sök­inni fyrir fram á aðra flokka á því sem fyr­ir­­sjá­an­­legt væri, eða því að starf nefnd­­ar­innar myndi engu skila.“

Hún nefnir svo tvö dæmi sem hún telur að styðji við þá skoðun sína að starf nefnd­ar­innar eigi ekki að skila neinu, og sé því sjón­ar­spil. Annað er við­tal við Daða Má Krist­ó­fers­son, for­seta Félags­vís­inda­stofn­unar og stjórn­ar­mann í Við­reisn, í Fiski­fréttum í síð­ustu viku. Daði er ráð­gjafi nefnd­ar­inn­ar, pró­fessor og auð­linda­hag­fræð­ing­ur. Í við­tal­inu sagði hann meðal ann­ars að sér finn­ist hug­­myndir manna „um umfang rentu í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á Íslandi oft vera skring­i­­lega bjart­­sýn­­ar.“ Veið­i­­­gjöld verði aldrei neinn meiri­háttar tekju­­stofn fyrir rík­­is­­sjóð og muni aldrei leysa af hólmi tekju­skatta. Menn hafi því að ein­hverju leyti séð „tölu­verðum ofsjónum yfir hagn­aði í sjá­v­­­ar­út­­­veg­i.“

Svan­dís vitnar líka í við­tal við Har­ald Bene­dikts­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­mann fjár­laga­nefnd­ar, í lið­inni viku. Þar sagði Har­aldur að lækka ætti veiði­gjöld strax í haust. „Þannig eru stóru átaka­lín­­urnar inni í rík­­is­­stjórn­­inni sjálfri og vand­­séð að nefnd Þor­­steins Páls­­sonar geti stigið skref til breyt­inga,“ skrifar Svan­dís.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent