Bændasamtök telja tillögur ráðherra ekki leysa vanda sinn að fullu

Bændasamtök Íslands og Landssamtök sauðfjárbænda segir að hætta sé á að þær aðgerðir sem landbúnaðarráðherra kynnti í morgun, og kosta 650 milljónir króna, séu ekki nægar og verði aðeins til að draga slæmt ástand á langinn.

Tillögur ráðherra gera ráð fyrir að fé verði fækkað um 20 prósent. Áætlað er að um 450 þúsund kindur séu í landinu.
Tillögur ráðherra gera ráð fyrir að fé verði fækkað um 20 prósent. Áætlað er að um 450 þúsund kindur séu í landinu.
Auglýsing

Bænda­sam­tök Íslands og Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda segja til­lögur stjórn­valda vegna erf­ið­leika sauð­fjár­bænda, sem kynntar voru opin­ber­lega í dag, séu á ábyrgð Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dótt­ur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Ekki sé um að ræða sam­komu­lag stjórn­valda við bændur og sam­tökin telja þær ekki leysa vanda sauð­fjár­bænda að fullu þó þær séu í rétta átt. „Bændur hafa lagt fram til­lögur til stjórn­valda sem miða að því að taka heild­stætt á þeim vanda sem við blas­ir. Lyk­il­at­riði í þeim lausnum er að virkja tíma­bundnar aðgerðir til sveiflu­jöfn­un­ar, svo sem að gera afurða­stöðvum kleift að taka sam­eig­in­lega ábyrgð á útflutn­ingi kinda­kjöts. Þær hug­myndir hafa ekki fengið braut­ar­gengi og staðan því óbreytt. Hættan er sú að þær aðgerðir sem land­bún­að­ar­ráð­herra nú leggur til séu ekki nægar og verði aðeins til þess að draga ástandið á lang­inn. “ Þetta kemur fram í sam­eiginlegri yfir­lýs­ingu sem sam­tökin hafa sent frá sér. 

Þar segir einnig að sam­komu­lag sé um að flýta end­ur­skoðun sauð­fjár­hluta búvöru­samn­inga og að stefnt sé að því að nið­ur­staða hennar liggi fyrir 1. apríl á næsta ári. „Í þeirri vinnu þarf að ræða áfram þau mál sem ekki eru leyst og eins meta árangur af þeim aðgerðum sem ráð­ist verður í nún­a.“

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að til­­lögur stjórn­­­valda vegna yfir­­stand­andi erf­ið­­leika í sauð­fjár­­­rækt muni kosta rík­­is­­sjóð um 650 millj­­ónir króna, komi þær til fram­­kvæmda. Sam­­kvæmt þeim verður gripið til umfangs­­mik­illa aðgerða til að draga úr fram­­leiðslu kinda­kjöts og fækka um leið fé um 20 pró­­sent. Þeir bændur sem hætta sauð­fjár­­fram­­leiðslu munu geta haldið 90 pró­­sent af greiðslum sam­­kvæmt sauð­fjár­­­samn­ingi í fimm ár og gripið verður til sér­­tækra aðgerða til að draga úr yfir­­vof­andi kjara­skerð­ingu bænda. 

Á móti verður þess kraf­ist að búvöru­­samn­ingur sauð­fjár­­bænda, sem var und­ir­­rit­aður í fyrra og gildir til tíu ára, verði end­­ur­­skoð­að­­ur. 

Auglýsing
Þau útgjöld sem sam­­þykkt hefur verið að ráð­­ast í verða þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­­­arði króna sem Lands­­­sam­tök sauð­fjár­­­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­­­bændum upp tap þeirra vegna fram­­­leiðslu árs­ins 2017. Ekk­ert er um end­­ur­­upp­­­töku útflutn­ings­­skyldu í til­­lög­un­um, en háværar kröfur hafa verið um að slík verði tekin aftur upp. Útflutn­ings­­skyldan var aflögð 2009 eftir að ríkið keypti hana af bænd­­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent