Héraðsdómur Reykjaness veitti í gær United Silicon, sem rekið hefur kísilmálmversksmiðju í Helguvík, framlengingu á heimild til greiðslustöðvunar til þriggja mánaða, eða til 4. desember. Helgi Jóhannesson hrl. hefur verið ráðinn aðstoðarmaður í greiðslustöðvun og hefur Héraðsdómur Reykjaness staðfest þá ráðningu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
„Framlengingunni er ætlað að gera fyrirtækinu kleift að endurskipuleggja rekstur félagsins og hrinda í framkvæmd endurbótaáætlun, sem byggð er á ráðleggingum utanaðkomandi sérfræðinga, með það að markmiði að gera fyrirtækið fjárhaglega og tæknilega rekstrarhæft til lengri tíma litið. Stjórn félagsins vinnur nú hörðum höndum að endurskipulagningu rekstrar félagsins í samvinnu við kröfuhafa þess. Fjárhagserfiðleikar félagsins eru fyrst og fremst afleiðing rekstrarerfiðleika í verksmiðju félagsins sem rekja má til endurtekinna bilana í búnaði og valdið hafa félaginu miklu tjóni. Á greiðslustöðvunartíma verður því líka unnið að frekari greiningum á tæknilegum úrlausnarefnum, áætlunum um úrbætur og nauðsynlegum endurbótum,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að markaðsverð á kísilmálmi hafi farið hækkandi og eftirspurnin hafi enn fremur aukist jafnt og þétt. Framtíðarhorfur í rekstrinum eru sagðar góðar, ef það takist að fjármagna nauðsynlegar endurbætur á starfseminni, en eins og kunnugt er hefur Umhverfisstofnun látið stöðva starfsemina, ekki síst vegna mengunar í nærumhverfi sem hefur haft slæmt áhrif á heilsu fólks í nærliggjandi hverfum. „Stjórn félagsins tekur alvarlega þá miklu ábyrgð sem fylgir því að reka starfsemi sem þessa og vill gera það í góðri sátt við nærsamfélagið og eftirlitsaðila og í samræmi við ákvæði laga og starfsleyfis. Stjórn félagsins mun á næstu mánuðum vinna að endurskipulagningu rekstrar til að tryggja rekstrarhæfni félagsins til frambúðar. Í því samhengi leggur stjórnin áherslu á að tryggja hagsmuni kröfuhafa félagsins, starfsfólks þess og hag sveitarfélagsins af tekjum af rekstri félagsins. Hluti þess verkefnis er að tryggja félaginu fjármagn til að ráðast í allar nauðsynlegar úrbætur til að bæta rekstur verksmiðju félagsins. Áður hafði United Silicon í svörum til UST veitt upplýsingar um fjölmörg úrbótaverkefni sem ætlunin er að ráðast í á greiðslustöðvunartíma. Ákvörðun UST kallar á enn frekari greiningu á mögulegum úrbótum og tímasetta áætlun um þær. Multiconcult er norsk ráðgjafarverkfræðistofa í fremstu röð á Norðurlöndum og hefur unnið með félaginu frá því síðasta vor og mun halda áfram að vera lykilráðgjafi félagsins í endurbótaferli næstu mánaða. Multiconsult fékk Norsku loftgæðarannsóknastofnunina (NILU) til liðs til að rannsaka og greina útblástur frá verksmiðjunni og mun það starf halda áfram,“ segir í tilkynningu félagsins.
Stjórn félagsins vinnur auk þess að því að styrkja innviði félagsins og gerir ekki ráð fyrir að koma þurfi til uppsagna starfsfólks. Hluti þess mun vinna að endurbótum á vinnustaðnum auk þess sem kapp verður lagt á að nota næstu þrjá mánuði til að styrkja starfsfólk í störfum sínum með því að auka þjálfun og fræðslu á meðan hefðbundin verkefni liggja niðri. Mannauður félagsins er lykilatriði til að tryggja framtíðarrekstur verksmiðjunnar.
Karen Kjartansdóttir hefur verið fengin til að sinna hlutverki talsmanns fyrirtækisins næstu mánuði, að því er segir í tilkynningu. Þá hefur stjórnin fengið Kristin Bjarnason hrl. til ráðgjafar fyrir félagið.“